Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sanchez reiður: Er ekkert lélegri en Modric og Ronaldo
Mynd: Udinese
Alexis Sanchez var allt annað en sáttur með veru sína hjá Udinese á síðustu leiktíð.

Þessi 36 ára gamli Sílemaður gekk til liðs við Udinese í annað sinn á ferlinum síðasta sumar. Hann kom hins vegar aðeins við sögu í 14 leikjum en hann var meiddur í upphafi tímabilsins.

„Ég er reiður, sannleikurinn er sá að ég varð að díla við þjálfara sem skildi mig ekki. Svo spilaði ég ekki í langan tíma vegna meiðsla. Mér líður vel líkamlega, þeir sem segja eitthvað um mig ættu á sjá mig á æfingum,"
„Það eru leikmenn eins og Modric og Ronaldo sem eru fertugir og enn að spila, ég er ekkert lélegri en þeir. Ég hef ekki spilað í minni stöðu í þrjú ár. Éeg vona að ég fari í lið sem gefur mér tækifæri að spila stöðugt."
Athugasemdir
banner
banner