Bardagakappinn Paddy Pimblett hefur látið Trent Alexander-Arnold heyra það.
Pimblett, sem er mikill stuðningsmaður Liverpool, er ósáttur við það hvernig Alexander-Arnold yfirgaf félagið. Bakvörðurinn var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Real Madrid.
Pimblett, sem er mikill stuðningsmaður Liverpool, er ósáttur við það hvernig Alexander-Arnold yfirgaf félagið. Bakvörðurinn var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Real Madrid.
„Ef þú hefur verið stuðningsmaður Liverpool frá því þú varst barn, þá viltu ekki fara. Ég myndi skipta mínum ferli á einu augabragði fyrir það sem Trent hafði," sagði Pimblett við breska ríkisútvarpið.
„Það er ekki bara það að hann sé að fara, það er hvernig hann fór að því. Hann dró félagið á asnaeyrum í tvö ár til þess að láta samninginn renna niður svo hann gæti farið frítt. Ég hef heyrt að hann sé búinn að vera að læra spænsku í 18 mánuði."
Pimblett segir að það sé til dæmis munur á því hvernig Philippe Coutinho hafi yfirgefið félagið samanborið við Alexander-Arnold. Coutinho hafi skrifað undir nýjan samning svo Liverpool gat fengið háa upphæð fyrir hann.
„Þetta myndband sem hann (Alexander-Arnold) gaf út var vandræðalegt. Hann talaði út frá texta á skjá. Ef ég væri að yfirgefa Liverpool, þá myndi ég gráta endalaust. Hann talaði ekki einu sinni frá hjartanu. Þetta var í alvöru vandræðalegt."
Athugasemdir