Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 13:39
Elvar Geir Magnússon
Cunha: Horfði á Man Utd leiki heima hjá ömmu í Brasilíu
Matheus Cunha.
Matheus Cunha.
Mynd: Man Utd
Matheus Cunha, leikmaður Brasilíu, segir að draumur hafi orðið að veruleika eftir að hann gekk í raðir Manchester United fyrir 62,5 milljónir punda.

United virkjaði riftunarákvæði í samningi hans við Wolves í þessum mánuði. Hann er nú kominn með atvinnuleyfi og búinn að standast læknisskoðun.

Sóknarleikmaðurinn gerði fimm ára samning með möguleika á ári til viðbótar.

„Það er erfitt að koma tilfinningum mínum í orð eftir að ég varð leikmaður Manchester United. Ég horfði á ensku úrvalsdeildina heima hjá ömmu minni í Brasilíu, United var mitt uppáhalds lið á Englandi og mig dreymdi um að klæðast rauðu treyjunni," segir Cunha.

„Ég vil þakka fjölskyldu minni og öllum sem hjálpuðu mér að láta drauminn verða að veruleika."

Cunha skoraði 31 mark í 76 leikjum fyrir Wolves síðan hann kom frá Atletico Madrid 2023.
Athugasemdir