Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 10:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rosenior reiður: Einhver þarf að útskýra reglurnar fyrir mér
Mynd: EPA
Stuðningsmenn, leikmenn og þjálfari Chelsea eru ósáttir við að jöfnunarmark Leeds fékk að standa í leik liðanna.

Noah Okafor kom boltanum í netið eftir mikinn klaufagang aftast hjá Chelsea, en í aðdragandum hafði Jayden Bogle, leikmaður Leeds, fengið boltann í höndina rétt fyrir utan vítateig Chelsea.

Liam Rosenior, stjóri Chelsea, var spurður út í markið í viðtali við TNT eftir leikinn í gær.

„Þegar markið var skorað hélt ég að þetta væri hendi. Ég hef ekki séð þetta aftur, Fólk er að spyrja sig hvort þetta sé hendi eða ekki. Reglan er sú að ef það er einhver snerting á hendina þá eigi markið ekki að standa, en ég hef ekki séð þetta aftur til að geta dæmt um það," sagði Rosenior. Fréttakona TNT sagði við Rosenior að talað hefði verið um í lýsingu leiksins að Bogle hefði ekki viljandi snert boltann með hendinni.

„Reglan er reglan. Minn skilningur er sá að ef það er einhver hendi í aðdraganda marks, þá eigi að dæma það af. Ef þetta var sagt, þá þarf einhver að útskýra reglurnar fyrir mér því það þarf að hjálpa dómaranum. Það að þú segir þetta gerir mig reiðari því það er óásættanlegt að komist var að þessari niðurstöðu," bætti Rosenior við.

Útskýringarnar sem hafa komið eftir markið eru þær að Bogle fékk boltann óvart í höndina og markið var ekki skorað strax í kjölfarið. Því fái það að standa.

Chelsea var með unninn leik í höndunum en missti niður tveggja marka forskot á síðasta hálftímanum. Cole Palmer fékk svo dauðafæri í uppbótartíma til að tryggja Chelsea öll stigin en mokaði boltanum einvhern veginn yfir mark Leeds af mjög stuttu færi.

Smelltu hér til að sjá markið

Athugasemdir
banner
banner