Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   þri 10. febrúar 2026 13:44
Elvar Geir Magnússon
Sex stig mikið miðað við formið á Arsenal
Pep Guardiola, stjóri Manchester City.
Pep Guardiola, stjóri Manchester City.
Mynd: EPA
Manchester City er sex stigum á eftir toppliði Arsenal. Pep Guardiola sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og ræddi meðal annars um titilmöguleika liðsins.

„Munurinn er ekki mikill en miðað við hvernig Arsenal er að spila eru sex stig mikið. Næsti leikur verður gegn Fulham sem bætir sig ári frá ári," segir Guardiola.

City fær Fulham í heimsókn á morgun en Arsenal heimsækir Brentford á fimmtudag.

John Stones klár í slaginn á ný
Á fundinum í dag greindi Guardiola frá því að varnarmaðurinn John Stones væri orðinn klár í slaginn en hann spilaði síðast 2. desember, einmitt gegn Fulham. Abdukodir Khusanov, sem fór af velli gegn Liverpool, er einnig leikfær.

Þá hrósar Guardiola kollega sínum, Marco Silva stjóra Fulham.

„Marco Silva er einn af allra bestu stjórum sem ég mæti. Hann verður einn af þeim allra bestu á næstu árum, ég er viss um það," segir Guardiola.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner