Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besti maður úrslitaleiksins framlengir við Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Keflavík tilkynnti í gær að Muhamed Alghoul væri búinn að framlengja samning sinn við félagið út tímabilið 2027.

„Muha kom til okkar fyrst árið 2023 um mitt tímabil. Hann mætti svo aftur í fyrra og hjálpaði okkur að vinna sæti aftur meðal þeirra bestu. Við erum himinlifandi með að hafa hann áfram í bláu treyjunni!" segir í tilkynningu Keflavíkur.

Alghoul var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins gegn HK í Lengjudeildarumspilinu síðasta haust. Hann lagði upp þrjú mörk í 4-0 sigri Keflavíkur á Laugardalsvelli.

Hann kom við sögu í 27 leikjum með Keflavík í fyrra og skoraði ellefu mörk auk þess að leggja upp níu samkvæmt Transermarkt.

Hann er fæddur í Zagreb í Króatíu, á að baki tvo leiki fyrir yngri landslið Króatíu en var fyrr í vetur valinn í landslið Palestínu.

Athugasemdir
banner