Það verður Old Firm slagur í 8-liða úrslitum skoska bikarsins en Rangers dróst á heimavelli gegn erkifjendunum í Celtic.
Celtic vann hádramatískan sigur gegn Dundee í 16-liða úrslitum. Allt stefndi í sigur Dundee þegar Junior Adamu, sem kom til Celtic á láni frá Freiburg, jafnaði í 1-1 á sjöundu mínútu uppbótartímans. Þetta var fyrsti leikur austurríska framherjans fyrir Celtic.
Snemma í framlengingunni skoraði svo Sebastian Tounekti sigurmark Celtic.

Rangers flaug áfram með 8-0 sigri gegn Queen's Park þar sem James Tavernier skoraði þrennu í fyrri hálfleik.
Deildabikarmeistararnir í St Mirren setja stefnuna á bikartvennu en þeir taka á móti Partick Thistle í 8-liða úrslitum en þau fara fram á laugardeginum 7. mars og þar í kring.
8-liða úrslitin
St Mirren - Partick Thistle
Falkirk - Dundee United eða Spartans
Rangers - Celtic
Dunfermline - Aberdeen eða Motherwell
Athugasemdir