Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   þri 10. febrúar 2026 12:50
Elvar Geir Magnússon
Haaland: Titilbaráttunni er ekki lokið
Mynd: EPA
Baráttunni um Englandsmeistaratitilinn er ekki lokið, þetta sagði Erling Haaland, sóknarmaður Manchester City, eftir endurkomusigurinn gegn Liverpool á sunnudaginn.

City er sex stigum á eftir toppliði Arsenal. Eftir sigurinn var Haaland spurður að því hvort sigurinn gegn Liverpool hefði haft meiri þýðingu en þrjú stig.

„Já klárlega, en þetta eru þrjú stig, svo einfalt er það. Við höfum séð það það áður að titilbaráttunni er ekki lokið fyrr en þetta er búið. Það sem ég hugsa um núna er að ná endurheimt, borða góðan mat og einbeita mér svo að Fulham. Það eru margir leikir eftir," sagði Haaland.

Haaland er ekki að skila sömu tölum og hann gerði í upphafi tímabils og markið hans gegn Liverpool var þriðja mark hans í síðustu tíu leikjum í öllum keppnum.

„Ég hef ekki skorað nægilega mörg mörk frá áramótum og veit að ég þarf að bæta það. Ég þarf að vera beittari og vinna í að skora meira. Ég vil ekkert ræða um neinar ástæður, það eru engar afsakanir. Það er mikið leikjaálag og þetta er ekki auðvelt."

City fær Fulham í heimsókn á morgun en Arsenal heimsækir Brentford á fimmtudag.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner