Grannaslagur Olympiakos og Panathinaikos í grísku úrvalsdeildinni var afar líklegur, en mikið var undir hjá báðum liðum sem eru þó í sitthvorri barátttunni.
Panathinaikos er að reyna að koma sér aftur á skrið í deildinni og komast í meistarariðilinn á meðan Olympiakos er í titilbaráttu við AEK og PAOK.
Sverrir Ingi Ingason leikur með Panathinaikos og spilaði í vörn liðsins, en hans menn tóku forystuna snemma leiks.
Færin voru á báða bóga en það vakti mikla athygli seint í síðari hálfleiknum að tvö stærstu klúður tímabilsins komu með aðeins mínútu millibili.
Portúgalinn Gelson Martins gat jafnaði metin á 77. mínútu fyrir Olympiakos er það kom sending á hann þar sem hann stóð meter fyrir opnu marki, en setti boltann á einhvern ótrúlegan hátt yfir markið.
Hann trúði varla sjálfur hvað hafði gerst og ekki Sverrir heldur sem horfði á eftir boltanum fljúga yfir markið.
Pana-menn stálheppnir þarna, en það voru svipuð svekkelsi hinum megin á vellinum aðeins mínútu síðar fékk Pavlos Pantelidis keimlíkt færi. Boltinn fór framhjá markverðinum og til Pantelidis sem var einn fyrir opnu marki en sendi boltann framhjá.
Samkvæmt Opta var Martins með 0,88 í xG en Pantelidis 0,91. Hægt er að sjá bæði færin hér fyrir neðan.
Athugasemdir


