Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   þri 10. febrúar 2026 14:07
Elvar Geir Magnússon
Mateta þarf ekki að fara undir hnífinn - „Ekki eins alvarlegt og við óttuðumst“
Mynd: EPA
Það var mikið svekkelsi fyrir Jean-Philippe Mateta, sóknarmann Crystal Palace, þegar fyrirhuguð sala hans til AC Milan varð að engu á gluggadeginum fyrir rúmri viku. Mateta hefur verið að spila í gegnum hnémeiðsli og féll á tvöfaldri læknisskoðun í Mílanó.

Talað var um að Mateta þyrfti að gangast undir aðgerð en Oliver Glasner, stjóri Palace, sagði á fréttamannafundi í dag að meiðslin væru ekki eins alvarleg og í fyrstu var óttast.

„Eftir að hafa verið skoðaðir af sérfræðingum er ljóst að Mateta verður frá í einhvern tíma. Ég get ekki sagt til um hvort það séu þrjár, fjórar eða fimm vikur," segir Glasner.

„Hann þarf allavega ekki að fara í aðgerð, hann getur jafnað sig betur með öðrum hætti og það eru góðar fréttir."

Mateta er í baráttu um að fara með franska landsliðinu á HM 2026 en það er hans draumur að spila fyrir þjóð sína á mótinu.

Þessi 28 ára leikmaður hefur skorað 10 mörk í 34 leikjum fyrir Palace á tímabilinu.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner