Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   þri 10. febrúar 2026 15:00
Elvar Geir Magnússon
Staða Dyche ekki traust eftir tapið gegn Leeds
Mynd: EPA
Staða Sean Dyche, stjóra Nottingham Forest, er talin í mikilli óvissu og óvíst hvort hann stýri liðinu áfram á næsta tímabili þó hann nái að bjarga því frá falli.

Dyche er þriðji stjóri Forest á tímabilinu en hann var ráðinn í október þegar Forest var tveimur stigum frá fallsæti. Hann hefur náð í 21 stig úr 17 leikjum og liðið er þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið..

Ef tímabilið er bara skoðað frá þeim tímapunkti sem Dyche tók við væri liðið í þrettánda sæti, sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Dyche skrifaði undir samning til júní 2027 og var tilnefndur sem stjóri mánaðarins í janúar eftir að hafa stýrt Forest á fjögurra leikja skrið án ósigurs.

Þrátt fyrir þetta þá segir Daily Mail að stjórnendur félagsins hafi áhyggjur af frammistöðunni í ákveðnum leikjum, sérstaklega í tapinu gegn Leeds á Elland Road síðasta föstudag. Þar vann Leeds 3-1 sigur í fallbaráttuslag.

Nuno Espirito Santo var rekinn frá Forest eftir aðeins þrjár umferðir á þessu tímabili og Ange Postecoglou sem tók við af honum entist aðeins 39 daga í starfinu. Nuno stýrir nú West Ham og það yrði óþægileg staða fyrir stjórnendur Forest ef hann heldur Hömrunum uppi á kostnað Forest.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner