Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vilja kaupa Grealish þrátt fyrir meiðslin en á afslætti
Mynd: EPA
Everton vill kaupa Jack Grealish af Manchester City en hann er hjá Bítlaborgarfélaginu á láni frá City út þetta tímabil. Grealish er meiddur, meiddist á fæti 18. janúar og mun ekki spila meira fyrir Everton á tímabilinu.

Enski kantmaðurinn hefur spilað vel fyrir Everton og er félagið sagt vilja ganga frá kaupum á honum. Það er The I sem segir frá.

Sagt var frá því síðasta sumar að Everton gæti út frá klásúlu í lánssamningum keypt Grealish á 50 milljónir punda.

Sá verðmiði er of hár fyrir Everton sem er frekar sagt horfa á 20-25 milljónir punda sem raunhæft verð fyrir Grealish. Everton þarf að öllum líkindum að greiða meirihluta launa Grealish, sem er á 300 þúsund pundum á viku, það sem eftir er tímabils.

Grelish er þrítugur og samningsbundinn City út næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner