Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   þri 10. febrúar 2026 12:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jason hitti sérfræðing og styttist í endurkomu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jason Daði Svanþórsson er að jafna sig á meiðslum sem hafa verið að plaga hann frá síðasta sumri. Jason er leikmaður Grimsby í ensku D-deildinni og spilaði síðast 8. nóvember gegn Barrow.

Jason fór í aðgerð síðasta sumar, sneri aftur á völlinn en meiddist aftur.

Eftir aðgerðina sneri jason til baka í lok september og náði sjö leikjum áður en hann meiddist aftur. Hann hitti sérfræðing á Spáni vegna hnémeiðsla og vonast þjálfari Grimsby, David Artell, til þess að Jason snúi aftur á grasið mjög fljótlega.

Líkur eru á því að Jason geti spilað aftur í næsta mánuði.

Jason er 26 ára og er samningsbundinn Grimsby út tímabilið. Hann hefur verið orðaður við heimkomu í sumar en óljóst er hvar hann spilar á næsta tímabili.

Grimsby situr í 12. sæti League Two, sjö stigum frá umspilssæti þegar liðið á 17 leiki eftir.
Stöðutaflan England England 2. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bromley 36 19 13 4 59 36 +23 70
2 MK Dons 35 18 11 6 67 35 +32 65
3 Cambridge United 35 18 11 6 50 28 +22 65
4 Notts County 35 19 7 9 54 34 +20 64
5 Swindon Town 36 19 6 11 59 43 +16 63
6 Salford City 35 18 4 13 49 46 +3 58
7 Grimsby 35 15 11 9 50 39 +11 56
8 Chesterfield 36 14 14 8 57 47 +10 56
9 Crewe 36 16 8 12 53 43 +10 56
10 Barnet 36 14 11 11 44 39 +5 53
11 Walsall 35 15 8 12 43 39 +4 53
12 Colchester 35 14 10 11 50 39 +11 52
13 Oldham Athletic 34 12 13 9 39 31 +8 49
14 Fleetwood Town 35 13 10 12 45 43 +2 49
15 Accrington Stanley 35 13 8 14 38 37 +1 47
16 Gillingham 34 11 12 11 42 42 0 45
17 Shrewsbury 36 11 8 17 37 56 -19 41
18 Cheltenham Town 34 10 7 17 36 57 -21 37
19 Tranmere Rovers 36 9 8 19 48 65 -17 35
20 Bristol R. 35 10 4 21 35 58 -23 34
21 Crawley Town 36 6 11 19 35 58 -23 29
22 Barrow 34 7 7 20 35 53 -18 28
23 Newport 36 7 7 22 36 63 -27 28
24 Harrogate Town 36 6 9 21 26 56 -30 27
Athugasemdir
banner
banner