Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton samþykkti tilboð Nottingham Forest í Lewis Dunk, fyrirliða félagsins, undir lok gluggans, en Dunk ákvað að halda kyrru fyrir.
Dunk hefur verið hjá Brighton frá 12 ára aldri og verið máttarstólpi í uppgangi liðsins síðasta eina og hálfa áratuginn.
Miðvörðurinn hefur spilað yfir 500 leiki fyrir Brighton og er álitinn sem goðsögn þar og kom því á óvart að Brighton hafi samþykkt tilboð Nottingham Forest í leikmanninn.
Brighton setti það síðan í hendur Dunk að ákveða næstu skref, en hann sýndi félaginu skuldbindingu sína með því að hafna boðinu sem hefði hækkað hann verulega í launum.
Dunk, sem er 34 ára gamall, er fastamaður í vörn Brighton og aðeins misst af einum deildarleik á þessari leiktíð.
Hann er þá fastamaður í enska landsliðshópnum, en hann á sex A-landsleiki að baki.
Athugasemdir


