Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   mán 09. febrúar 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Skandall í Maldíveyjum - Björguðu sér frá falli með því að mæta ekki til leiks
Club Valencia er fallið niður um deild
Club Valencia er fallið niður um deild
Mynd: Club Valencia
Club Valencia, sem hefur unnið úrvalsdeildina í Maldíveyjum fimm sinnum, féll niður um deild á dögunum eftir afar umdeildan atburð í lokaumferðinni.

Staðan fyrir lokaumferðina var þannig að bæði Club Valencia og Green Streets gátu fallið.

Valencia vann sinn leik 2-0 gegn Eagles og þurfti að treysta á að Green Streets myndi tapa sínum leik með fjórum mörkum eða meira, en Green Streets átti leik gegn New Radiant sem var í 3. sæti deildarinnar.

Í stað þess að spila leikinn ákvað Green Streets að mæta ekki til leiks, vitandi það að New Radiant yrði dæmdur í mesta lagi 3-0 sigur og fór það því svo að Valencia féll.

Vegna stöðunnar hefur Green Streets verið ásakað um að hagræða úrslitum og hefur Valencia kallað eftir því að málið verið rannsakað.

Deildin hefur sjálf ákveðið refsingu fyrir Green Streets, en félagið má ekki kaupa leikmenn í næsta félagaskiptaglugga og þá hefur það verið sektað um 400 þúsund í íslenskum krónum.
Athugasemdir
banner
banner