Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 09:21
Elvar Geir Magnússon
Mbappe og Vinicius borguðu reikninginn
Stórstjörnur Real Madrid áttu móralskan hitting.
Stórstjörnur Real Madrid áttu móralskan hitting.
Mynd: @vinijr
Stórstjörnur Real Madrid fengu sjaldgæft frí í miðri viku og notuðu tækifærið og fóru saman út að borga í miðborg Madrídar í gærkvöldi.

Allir úr leikmannahópi Real Madrid mættu á veitingastaðinn ’61’ og Marca segir að þeir Kylian Mbappe og Vinicius Junior hafi splæst á liðsfélaga sína og borgað reikninginn.

Næsti leikur Real Madrid er á laugardagskvöld, gegn Orra Steini Óskarssyni og félögum í Real Sociedad.

Það hefur ýmislegt gengið á hjá Real Madrid á þessu tímabili og Xabi Alonso var látinn taka pokann sinn. Alvaro Arbeloa tók við og þó liðið hafi verið á sigurbraut í La Liga undir hans stjórn þá féll liðið úr bikarnum og tapaði gegn Benfica í Meistaradeildinni.

Það var góður andi í hópnum en enginn virðist hafa skemmt sér betur en Raul Asencio sem yfirgaf staðinn síðastur, eða klukkan 2:50 um nóttina.

Mbappe ánægðari með Alonso
Spænskir miðlar segja að það séu ekkert allir hoppandi kátir með Arbeloa, þar á meðal sé Mbappe sem hafi verið ánægðari undir stjórn Alonso.

Fyrirliðinn Dani Carvajal er pirraður yfir fáum spilmínútum en hann og Arbeloa hafa haldið fund til að lægja öldurnar. Þá er austurríski varnarmaðurinn David Alaba ekki sáttur við sína stöðu og telur sig ekki fá þau tækifæri sem hann eigi skilið.

Real Madrid er í öðru sæti spænsku deildarinnar, stigi á eftir Barcelona.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 23 19 1 3 63 23 +40 58
2 Real Madrid 23 18 3 2 49 18 +31 57
3 Atletico Madrid 23 13 6 4 38 18 +20 45
4 Villarreal 22 14 3 5 43 24 +19 45
5 Betis 23 10 8 5 37 28 +9 38
6 Espanyol 23 10 4 9 27 31 -4 34
7 Celta 23 8 9 6 30 25 +5 33
8 Real Sociedad 23 8 7 8 33 31 +2 31
9 Osasuna 23 8 5 10 28 28 0 29
10 Athletic 23 8 4 11 25 33 -8 28
11 Getafe 23 7 5 11 18 27 -9 26
12 Girona 23 6 8 9 22 37 -15 26
13 Sevilla 23 7 4 12 30 38 -8 25
14 Alaves 23 7 4 12 20 29 -9 25
15 Elche 23 5 9 9 31 35 -4 24
16 Mallorca 23 6 6 11 28 37 -9 24
17 Valencia 23 5 8 10 23 37 -14 23
18 Vallecano 22 5 7 10 18 30 -12 22
19 Levante 22 4 6 12 26 38 -12 18
20 Oviedo 22 3 7 12 12 34 -22 16
Athugasemdir
banner
banner