Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
   þri 10. febrúar 2026 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heyrði leigubílasögu úr Úlfarsárdalnum
Ægir Jarl (til vinstri) hér með Axel Óskari Andréssyni, leikmanni Aftureldingu.
Ægir Jarl (til vinstri) hér með Axel Óskari Andréssyni, leikmanni Aftureldingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir Jarl Jónasson var orðaður við heimkomu til Íslands í síðasta þætti af Útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Ægir Jarl er í dag á mála hjá AB í Danmörku en hann var orðaður við Fram í þættinum. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, þekkir Ægir vel eftir að hafa þjálfað hann áður hjá KR.

„Ég var að heyra leigubílasögu að Ægir Jarl sé sterklega orðaður við Framara," sagði Valur Gunnarsson.

„Þetta er algjör leigubílasaga en ég heyrði þetta. Mér þætti þetta mjög áhugaverð viðbót við Framliðið."

Fram hefur ekki bætt við sig miklu fyrir komandi keppnistímabil en Ægir Jarl gæti styrkt liðið mikið ef rétt er. Hann var líka orðaður við Fram síðasta sumar.

„Ægir Jarl er hörkuleikmaður. Hann myndi styrkja þá," sagði Valur.

Hægt er að hlusta á allan þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan.
Útvarpsþátturinn - Skagamenn hástökkvarar í ótímabæru
Athugasemdir
banner
banner
banner