Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Toni Kroos svaraði fölskum ummælum
Toni Kroos.
Toni Kroos.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er eitthvað lítið að gera hjá Toni Kroos eftir að skórnir fóru upp á hilluna frægu. Hann ákvað nefnilega í gær að svara fölskum ummælum á Instagram.

Ummælin eru frá 2024 þegar Real Madrid spilað við Dortmund í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. John Obi Mikel, fyrrum miðjumaður Chelsea, átti þá hafa sagt að Kroos væri miðlungs leikmaður og hann hafi sjálfur verið miklu betri.

Obi Mikel sagði sumarið 2024 að þetta hefðu verið falsfréttir og hann hafi aldrei sagt þetta.

Kroos var hins vegar ekki búinn að sjá það og ákvað að svara þessum gömlu ummælum í gær.

„Af hverju spilaðir þú þá ekki fyrir Real Madrid?" sagði Kroos einfaldlega.

Kroos spilaði lengi fyrir Real Madrid og vann allt sem hægt er að vinna með spænska stórveldinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner