Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   þri 10. febrúar 2026 19:30
Elvar Geir Magnússon
Sancho að finna sig betur en þarf að gera enn meira
Jadon Sancho.
Jadon Sancho.
Mynd: EPA
Unai Emery, stjóri Aston Villa.
Unai Emery, stjóri Aston Villa.
Mynd: EPA
Jadon Sancho kom að sínu fyrsta marki í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið þegar hann lagði upp mark Morgan Rogers í 1-1 jafntefli Aston Villa gegn Bournemouth.

Sancho, sem er á láni frá Manchester United, hefur ekki náð að finna sig almennilega á tímabilinu.

Á fréttamannafundi í dag var Unai Emery, stjóri Villa, spurður að því hvort félagið myndi reyna að fá Sancho alfarið þegar samningur hans við United rennur út í sumar.

„Það er óákveðið. Hann er virkilega góður leikmaður og vonandi geutr hann hjálpað okkur meira. Ef hann nær að sýna sínar bestu hliðar þá viljum við halda honum og þá vilja önnur lið líka fá hann. Svona er fótboltinn, hver einasti leikur er mikilvægur fyrir hvern leikmann," segir Emery.

„Sjáum hvernig hann nær að fylgja þessu eftir á morgun. Fyrri hluti tímabilsins var ekki nægilega góður hjá honum, hann reyndi en náði ekki að framkalla frammistöðuna sem þurfti. Hann hefur verið betri seinni hlutann. Hann þarf að gera kröfur á sjálfan sig og sýna stöðugleika."

„Við höfum áfram trú á honum. Hann er að bæta sig og leggur meira til liðsins. Hann á skilið að fá fleiri mínútur og fær þær."

Villa er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið mætir Brighton á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner