Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
banner
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
föstudagur 12. september
Besta-deild kvenna
sunnudagur 8. febrúar
Championship
Swansea 4 - 0 Sheff Wed
Úrvalsdeildin
Liverpool 0 - 0 Man City
Brighton 0 - 1 Crystal Palace
WSL - Women
London City Lionesses W 0 - 1 Everton W
West Ham W 3 - 2 Brighton W
Tottenham W 0 - 2 Chelsea W
Arsenal W 1 - 0 Manchester City W
Liverpool W 4 - 1 Aston Villa W
Division 1 - Women
Lyon W 4 - 0 Saint-Etienne W
Strasbourg W 2 - 4 Marseille W
Bundesligan
Bayern 3 - 1 Hoffenheim
Köln 1 - 2 RB Leipzig
Frauen
Hamburger W 1 - 3 RB Leipzig W
Nurnberg W - Hoffenheim W - 17:30
Union Berlin W 1 - 2 Carl Zeiss Jena W
Vináttuleikur
Qatar U-20 - United Arab Emirates U-20 - 13:30
China PR U-20 - Uzbekistan U-20 - 08:00
Serie A
Juventus - Lazio - 19:45
Lecce 2 - 1 Udinese
Bologna 0 - 1 Parma
Sassuolo 0 - 1 Inter
Serie A - Women
Roma W 1 - 0 Milan W
Inter W 3 - 0 Fiorentina W
Napoli W 3 - 1 Ternana W
La Liga
Atletico Madrid - Betis - 17:30
Athletic 4 - 2 Levante
Alaves 0 - 2 Getafe
Valencia - Real Madrid - 20:00
Sevilla 1 - 1 Girona
sun 08.feb 2026 15:25 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Útilokaði Atla og frysti hann í varaliðinu - „Hversu ómennskur er hægt að vera?"

Húsvíkingurinn Atli Barkarson gekk í upphafi síðustu viku í raðir norska félagsins Sogndal. Hann semur í Noregi eftir eitt og hálft ár hjá belgíska félaginu Zulte Waregem.

Tíminn í Belgíu var kaflaskiptur, liðið vann B-deildina á fyrsta tímabilinu og Atli var í nokkuð stóru hlutverki. Hann þurfti að fara í aðgerð vegna meiðsla á öxl í apríl á síðasta ári og spilaði ekki keppnisleik fyrir liðið eftir það.

Fótbolti.net ræddi við vinstri bakvörðinn í vikunni. Hann var þá nýbúinn að spila sinn fyrsta æfingaleik með liðinu, en það er statt í æfingaferð á Spáni.

'Auðvitað lítur þetta utan frá ekkert út fyrir að vera mest spennandi skref í heim'
'Auðvitað lítur þetta utan frá ekkert út fyrir að vera mest spennandi skref í heim'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það mikilvægasta er að spila fótbolta, komast aftur í góðan takt og vonandi taka skref fram á við'
'Það mikilvægasta er að spila fótbolta, komast aftur í góðan takt og vonandi taka skref fram á við'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég er spenntur fyrir því að fara aftur til Noregs'
'Ég er spenntur fyrir því að fara aftur til Noregs'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á að baki 37 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim sjö mörk.
Á að baki 37 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim sjö mörk.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á landsliðsæfingu snemma árs 2022.
Á landsliðsæfingu snemma árs 2022.
Mynd/KSÍ
Ræddi við Valdimar áður en hann samdi við Sogndal.
Ræddi við Valdimar áður en hann samdi við Sogndal.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sven Vandenbroeck fær engin jólakort frá Atla.
Sven Vandenbroeck fær engin jólakort frá Atla.
Mynd/EPA
Íslands- og bikarmeistari með Víkingi.
Íslands- og bikarmeistari með Víkingi.
Mynd/Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Luis Pimenta er þjálfari Sogndal.
Luis Pimenta er þjálfari Sogndal.
Mynd/Heimasíða Sogndal
Á að baki fjóra leiki fyrir A-landsliðið.
Á að baki fjóra leiki fyrir A-landsliðið.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þurfti að fara í aðgerð á öxl fyrir tæpu ári síðan og hefur ekki spilað keppnisleik síðan.
Þurfti að fara í aðgerð á öxl fyrir tæpu ári síðan og hefur ekki spilað keppnisleik síðan.
Mynd/AB
Vann belgísku B-deildina vorið 2024.
Vann belgísku B-deildina vorið 2024.
Mynd/Magnús Agnar
Var keyptur til Belgíu frá SönderjyskE sumarið 2024.
Var keyptur til Belgíu frá SönderjyskE sumarið 2024.
Mynd/Zulte Waregem
Var hjá Zulte Waregem í eitt og hálft ár.
Var hjá Zulte Waregem í eitt og hálft ár.
Mynd/ERA
Skrifaði undir hjá Sogndal í lok síðasta mánaðar.
Skrifaði undir hjá Sogndal í lok síðasta mánaðar.
Mynd/Songdal
Uppalinn hjá Völsungi á Húsavík.
Uppalinn hjá Völsungi á Húsavík.
Mynd/Heimasíða Völsungs
,,Ég er mjög spenntur fyrir því að verða aftur hluti af liði
,,Ég er mjög spenntur fyrir því að verða aftur hluti af liði
Mynd/Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Í vináttuleik gegn Úganda.
Í vináttuleik gegn Úganda.
Mynd/KSÍ
Á A-landsliðsæfingu árið 2022.
Á A-landsliðsæfingu árið 2022.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leik með SönderjyskE.
Í leik með SönderjyskE.
Mynd/SönderjyskE
'Það er bjartara framundan'
'Það er bjartara framundan'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þetta var bara verkefni sem ég þurfti að klára og kærastan hjálpaði mér mjög mikið'
'Þetta var bara verkefni sem ég þurfti að klára og kærastan hjálpaði mér mjög mikið'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í æfingaferð á Campoamor
„Við erum á Alicante, Campoamor, í tveggja vikna í æfingaferð. Við vorum að spila við lið frá Suður-Kóreu og ég spilaði mínar fyrstu 35 mínútur með liðinu. Ég er að koma mér inn í þetta hægt og rólega, undirbúningstímabilið er langt, deildin byrjar ekki fyrr en í byrjun apríl. Ég er nýbúinn að vera á tímabili í Belgíu, fínt að koma sér hægt og rólega inn í hlutina," segir Atli en hann ræddi við Fótbolta.net á fimmtudag. Hann er 24 ára, uppalinn hjá Völsungi en fór ungur að árum til Norwich á Englandi. Hann á að baki fjóra landsleiki og yfir 30 leiki fyrir yngri landsliðin.

„Mig langar það ekkert eðlilega mikið"
Mikilvægast að fá að spila
„Ég var í mjög erfiðri stöðu í Belgíu, ég þurfti að finna lausn á mínum málum í janúar. Ég og umboðsmaðurinn minn vorum að reyna finna bestu lausnina; þar sem mestu möguleikarnir væru á því að ég myndi spila flesta leiki - það er það mikilvægasta fyrir mig núna."

„Ég hef ekki spilað í hálft ár með aðalliði, hef spilað leiki með varaliðinu í hverri viku, en það er ekki það sama. Ég vildi fara á stað þar sem umhverfið væri gott til þess að vaxa, þar sem ég gæti vonandi spilað flesta leiki og koma mér aftur af stað ef ég orðað það þannig."


Ætla sér að berjast um að fara upp um deild
„Aðdragandinn var ekkert svakalega langur. Sogndal hafði áhuga og umboðsmaðurinn lét mig vita af honum, ég fór á fund með þjálfaranum hjá liðinu og tveimur stjórnendum. Þeir kynntu fyrir mér hvernig þeir sæju þetta fyrir sér og spurðu mig út í ákveðna hluti; hvað ég væri að hugsa og hvernig staðan væri á mér. Mér leist mjög vel á þetta skref eftir fundinn og talaði svo aftur við þjálfarann u.þ.b. viku seinna. Ég ákvað svo að kýla á þetta. Sogndal endaði í 8. sæti í deildinni og stefnan er að bæta í á þessu ári. Það þýðir annað hvort umspil eða beint upp. Það er markmiðið."

Portúgalinn Luis Pimenta er þjálfari Sogndal, hann hefur þjálfað yngri landslið Noregs og hefur einnig þjálfað lið í Lettlandi, Svíþjóð og Noregi. „Hann er mjög fær þjálfari og er með aðra Portúgali með sér í teyminu."

Talaði við Valdimar
Það hafa nokkrir Íslendingar verið hjá Sogndal á síðustu árum. Atli ræddi við einn þeirra, Valdimar Þór Ingimundarson, áður en hann tók ákvörðun um að semja við félagið.

„Ég heyrði aðeins í Valdimar, spurði hann hvernig þetta væri og hvort hann teldi þetta ekki gott skref. Hann var mjög jákvæður fyrir þessu. Sogndal er svolítið einangraður bær þannig lagað, en þetta er ótrúlega fallegt og flott. Eina sem skiptir máli fyrir mig er að spila fótbolta, að haldast meiðslafrír og fæ að spila sem mest."

„Ég fór beint til Spánar frá Belgíu, hitti liðsfélagana þar. Ég fer svo beint til Noregs með liðinu eftir æfingaferðina."


Áður spilað í Noregi
Undirritaður ræddi við Atla fyrir nokkrum árum síðan og fór hann þá yfir tímann sinn í Noregi seinni hluta ársins 2019. Hann var þá á mála hjá Fredrikstad og var þjálfari hans þar ekki ánægður með að Atli hafi farið í landsliðsferð þegar Fredrikstad átti leik. Undirritaður spurði Atla á léttu nótunum hvernig það hljómi að fara aftur til Noregs.

„Ég horfi ekki til baka og hugsa það sem slæman tíma. Ég var þarna í nokkra mánuði, þetta var milliskref áður en ég fór aftur til Íslands. Þetta var ekkert skemmtilegast í heimi, en fínt að sjá hvernig væri að vera í aðalliðsfótbolta eftir tímann í Norwich. Ég gerði svo mjög vel hjá Víkingi [varð Íslands- og bikarmeistari] og fór svo aftur út. Þetta verður öðruvísi núna, verð 100% hluti af aðalliði og vonandi lykilmaður í liðinu."

„Ég er spenntur fyrir því að fara aftur til Noregs, kærastan mun flytja með mér og ég er mjög spenntur fyrir því að verða aftur hluti af liði. Það er mjög spennandi."


Atli var seldur til SönderjyskE í Danmörku eftir tímabilið 2021 með Víkingi og sumarið 2024 var hann svo keyptur til Zulte Waregem. Eins og Atli kemur inn á flytur kærasta hans, Arnhildur Ingvarsdóttir, með honum til Noregs og eiga þau von á sínu fyrsta barni í sumar.

Þurfti að kyngja stoltinu
Skrefið úr belgísku úrvalsdeildinni og í næstefstu deild Noregs. Þú sagðir áðan að það mikilvægasta fyrir þig væri að spila alla leiki, þurftir þú að kyngja einhverju stolti þegar þú tókst þessa ákvörðun?

„Það má alveg segja það. Auðvitað lítur þetta utan frá ekkert út fyrir að vera mest spennandi skref í heimi, en ég varð líka bara að vera raunsær, raunsær við sjálfan mig. Það er erfitt sem leikmaður að finna sér félag ef þú ert ekki búinn að vera spila í sex mánuði. Ég var að jafna mig af meiðslum síðasta sumar, var orðinn klár og var ekkert meiddur síðustu fimm mánuðina. Það var fullt af klúbbum sem höfðu áhuga en spurningarnar voru alltaf þær sömu: „Af hverju er hann ekki búinn að vera spila eða æfa með aðalliðinu?" „Er hann vondur í hóp?". Ég og umboðsmaðurinn þurftum alltaf að vera útskýra þetta. Á endanum var þessi ákvörðun tekin. Það mikilvægasta er að spila fótbolta, komast aftur í góðan takt og vonandi taka skref fram á við."

Mátti ekki lengur æfa með aðalliðinu
Þá að aðalatriðinu, af hverju varstu ekki i myndinni hjá aðalliðinu? Atli fór í aðgerð á öxl í apríl og það var vitað mál að hann yrði nokkra mánuði að ná sér eftir hana. Hann vissi ekki þá að hann væri búinn að spila sinn síðasta keppnisleik fyrir félagið. Hann var á bekknum í lokaleiknum fyrir landsleikjahléið í september, og var það í eina skiptið á tímabilinu sem hann var í hóp í keppnisleik.

„Ég eiginlega veit ekki hvað gerðist," sagði Atli sem reyndi svo að útskýra hvað hefði gerst í lok ágúst og byrjun september á síðasta ári.

„Ég fór í aðgerð og það vita allir hjá félaginu að endurhæfingin mun taka þrjá mánuði, þá yrði ég klár í að spila. Ég þurfti að bíða eftir því að viðbeinið og það sem lagað var í öxlinni myndi gróa. Þegar það væri orðið gróið mætti ég taka fullan þátt í æfingum og leikjum. Ég fór í aðgerðina, byrjaði að æfa án snertinga við aðra leikmenn. Ég tók þátt í upphitun, sendingaæfingum og hlaupum."

„Þegar ég var orðinn klár, akkúrat þremur mánuðum upp á dag eftir aðgerð. Ég æfði með aðalliðinu, spilaði 1-2 æfingaleiki með aðalliðinu og einn með varaliðinu og ekkert mál. Ég var í góðu standi og þetta leit nokkuð vel út, þjálfarinn spenntur að fá mig til baka, vildi fá mig til baka sem fyrst. Ég var búinn að æfa í 2-3 vikur á fullu og spila leiki, þá kom landsleikjahléið í byrjun september."

„Leikmenn fengu helgarfrí og ég fór með kærustunni til London. Á fyrsta degi frísins, á leiðinni til London, fæ ég þau skilaboð að ég ætti að mæta á æfingu með varaliðinu þegar ég kæmi til baka af því ég ætti að spila leik með þeim. Það var ekkert sérstakt að fá þessi skilaboð á leiðinni í frí, en ég pældi ekkert alltof mikið í því. Ég lét umboðsmanninn minn vita og okkur fannst þetta smá skrítið. Þegar nokkrir dagar voru eftir af belgíska glugganum heyrir umboðsmaðurinn í Zulte Waregem og fær þau skilaboð að þeir ætli sér að ná í annan vinstri bakvörð: „Við erum að fara ná í annan vinstri bakvörð og Atli má bara fara koma sér í burtu"."

„Það var ekki búið að undirbúa neitt, yfir sumarið var alltaf talað eins og menn væru agalega spenntir að fá mig til baka. Ég mæti til baka úr fríinu í London, spila leik með varaliðinu og tek daginn eftir leikinn hálfa æfingu með aðalliðinu af því ég var nýbúinn að spila 90 mínútur. Eftir æfinguna kallar þjálfarinn mig á fund, ég hélt hann væri bara að fara spjalla eitthvað við mig, hvernig staðan væri eða eitthvað svoleiðis, en þá útskýrði hann fyrir mér að hann ætlaði að minnka hópinn, það væru of margir vinstri bakverðir og ég mætti ekki lengur æfa með aðalliðinu. Hann sagði að ég ætti bara að æfa með varaliðinu, mætti ekki koma í morgunmat og hádegismat, það eina sem ég mætti gera væri að mæta í ræktina fyrir æfingu, en annars væri ég ekki hluti af aðalliðinu lengur."


Settur í mjög erfiða stöðu
Þú varst bara gerður útlægur úr hópnum?

„Já, og þarna voru 2-3 daga eftir af belgíska glugganum sem er opinn lengur (til 8. september) en flestir gluggar í Evrópu. Ég spurði af hverju ég var ekki látinn vita fyrr. Hann sagði að umboðsmaðurinn minn hefði vitað af þessu fyrir 2-3 vikum. Það er bara kjaftæði. Umboðsmaðurinn minn vissi ekki af þessu fyrr en rétt á undan þessu. Ég veit ekki hvort að þeir hjá félaginu hafi haldið að allir gluggar væru opnir fyrir mig, en það var ekki raunin, það var bara opið í Belgíu og í Tyrklandi. Ég var ekkert að fara bara eitthvert annað í Belgíu eða til Tyrklands með engum fyrirvara. Félagið vildi líka selja mig, fá einhvern pening fyrir mig, ég mátti ekki bara fara frítt."

„Þeir voru mögulega að reyna láta mig rifta samningnum, setja mig í erfiða stöðu, mér allavega leið þannig. Ég ákvað að gera það ekki. Því ef ég hefði rift samningi þá hefði ég verið án félags og einungis getað farið til félaga þar sem glugginn var opinn, líklega án félags þar til í janúar."

„Ég ákvað að vera áfram, æfa og spila með varaliðinu, og fara svo í janúar. Þannig fór það. Þjálfarinn í varaliðinu dýrkaði mig, hann vildi hafa mig sem fyrirliða og sagðist ekki skilja hvað væri í gangi; af hverju ég væri í þessari stöðu. Þetta var allt rosa skrítið."


Mjög erfiður dagur
Hvernig var að heyra að þú værir ekki að fara æfa meira með aðalliðinu. þú værir ekki velkominn í hópinn?

„Þetta var mjög erfitt ég viðurkenni það. Þegar ég kom heim eftir þennan dag þá var búið að fjarlægja mig úr WhatsApp-hópnum og ég gat ekki lengur skoðað klippur úr leikjum. Ég var ekki með aðgang að neinu lengur, strax sama dag. Sem betur fer var kærastan úti með mér, hún hjálpaði mér í þessu. Þetta var mjög erfitt."

Þver og erfiður þjálfari skipti ekki um skoðun
Frá því í byrjun september, kom aldrei upp möguleika að þú myndir æfa með aðalliðinu?

„Umboðsmaðurinn minn reyndi eins og hann gat. Hann reyndi að útskýra fyrir stjórnendum félagsins að þeir gætu ekki selt mig ef ég væri hvorki að æfa né spila með aðalliðinu. Hann sagði við þá að ég yrði að fá að æfa með aðalliðinu svo það væri auðveldara fyrir okkur að selja mig til annarra félaga. Stjórnendurnir áttuðu sig aðeins á stöðunni og reyndu að tala við þjálfarann, en þessi þjálfari er agalega þver og erfiður náungi. Hann var aldrei að fara breyta um skoðun. Það var oft þannig að aðalliðinu vantaði leikmann á æfingu og leikmenn teknir úr varaliðinu. Ég er miklu betri en þeir leikmenn, en það bara átti ekki að taka mig á æfingu með aðalliðinu. Þetta var rosa skrítið."

Óttaðist að komast ekki í burtu
Þegar þú ert að fara til Sogndal. Var eitthvað vesen fyrir þig að fá að fara? Vildu þeir ennþá fá pening fyrir þig?

„Það var alveg smá vesen fyrir Sogndal að fá mig, það tók alveg tvær og hálfa viku fyrir félögin að ná saman eftir að ég var búinn að samþykkja allt mín megin. Mér finnst það ekki eðlilegt, ég var alltaf að spyrja umboðsmanninn hvað væri í gangi. Hann hafði ekki hugmynd, sagði að þetta væri á milli félaganna og hann gæti í raun ekkert gert."

Hvernig leið þér þegar þetta var loksins staðfest?

„Ég eiginlega trúði þessu eiginlega ekki fyrr en ég var mættur til Alicante og búinn að skrifa undir allt. Það var markmaður sem lenti í sömu stöðu og ég hjá Zulte Waregem og í janúar höfðu tveir klúbbar ætlað að fá hann, allt var orðið klárt og hann bara að fara frá félaginu. Í fyrra skiptið sendi Zulte Waregem vitlausa pappíra og í seinna skiptið hættu þeir bara allt í einu við. Ég trúði því engu fyrr en ég var mættur hingað og búinn að skrifa undir."

Varstu farinn að óttast það að þetta yrði hálft tímabil í viðbót án þess að spila aðalliðsbolta?

„Já, í lok janúar viðurkenni ég alveg að ég var orðinn smeykur. Ég hugsaði hvað ég væri að fara gera, það var ekkert að gerast, ég var bara að bíða og bíða eftir því hvort þessi skipti gætu gengið í gegn og ég vissi ekki hvað væri í gangi. Í janúar mátti ég ekki einu sinni æfa almennilega með varaliðinu því félagið vildi ekki að ég myndi meiðast. Ég mátti bara hita upp og taka þátt í sendingaæfingum, mátti ekki fara í neinn kontakt við menn eða svoleiðis allan janúar. Ég var bara að bíða."

Ræddi aldrei aftur við þjálfarann
Þú áttir aldrei aftur samtal við þjálfarann eftir að hann tilkynnti þér ákvörðunina í byrjun september?

„Nei," sagði Atli einfaldlega og það er ljóst að Sven Vandenbroeck fær engin jólakort frá Íslendingum.

Vandenbroeck fer sínar eigin leiðir í þjálfuninni og hlutirnir hjá Zulte Waregem, virðast allavega, að mjög miklu leyti vera gerðir eftir hans höfði. Undir lok síðasta árs lét hann aðstoðarþjálfarann sinn fara. Mark Luijpers heitir sá, hann missti föður sinn síðasta haust og eiginkona hans glímir við krabbamein. Luijpers vandaði Vandenbroeck ekki kveðjurnar í viðtali í síðasta mánuði. Luijpers lýsti Vandenbroeck sem ágætis þjálfara sem skorti samkennd.

Atli segir að ef menn eru ekki í stóru hlutverki hjá Vandenbroeck þá séu þeir ekki neitt fyrir honum.

„Hann talar þá ekki við þig, hann er mjög erfiður. Hann var tekinn við þegar ég kom sumarið 2024. Ég spilaði eiginlega alla leiki á síðasta tímabili, en svo allt í einu datt ég út úr liðinu. Þá spilaði ég ekki í einhverja sjö leiki í röð, kom ekki einu sinni inn á. Hann talaði ekki einu sinni við mig."

Rússíbani
Hvernig gerir þú upp þetta eina og hálfa ár hjá belgíska félaginu?

„Ég held að besta orðið sé rússíbani. Það gekk mjög vel í byrjun, ég var að spila mjög vel, var mjög sáttur við sjálfan mig. Svo allt í einu dett ég úr liðinu og það var í alvörunni engin ástæða. Ég var búinn að spila mjög vel og liðsfélagarnir skildu þetta ekki. Ég bara allt í einu datt úr liðinu. Ég missti sjálfstraust og leikform, en spilaði ágætlega í lok fyrra tímabilsins. Það vissu svo allir af aðgerðinni, endurhæfingin var akkúrat jafnlöng og áætlað var. En svona fór þetta. Leiðinlegt að lenda í þessu, en svona er fótboltinn."

Þjálfarinn réði öllu
Áttir þú samtöl við aðra en þjálfarann, hugsar þú til baka að það var eitthvað sem þú hefðir getað gert öðruvísi?

„Ég veit það ekki. Ég talaði við aðstoðarþjálfarana, þeir voru á mínu bandi, sögðust ekki alveg vita hvað væri í gangi. En þjálfarinn réði öllu í klúbbnum, hann tók allar ákvarðanir, styrktarþjálfarinn fylgdi honum t.d. í einu og öllu, réð engu sjálfur."

Var vel liðinn og þakkað fyrir að vera ekki með nein leiðindi
Hvernig var að kveðja félagið?

„Ég ræddi við yfirmann fótboltamála (sporting director), hann var ánægður með mig, þakkaði mér fyrir að hafa tæklað þessa mánuði af fagmennsku. Ég var aldrei með neitt vesen, neitaði aldrei að æfa eða eitthvað svoleiðis. Leikmennirnir voru líka mjög ánægðir fyrir mína hönd þegar ég var loksins að fara, sögðu að ég hefði ekki átt þetta skilið. Alltaf þegar ég mætti á æfingasvæðið, aðalliðið æfði á undan varaliðinu, þá voru þeir að taka stöðuna á mér, ég var vel liðinn í hópnum, þeir voru allir fínir félagar mínir. Þegar ég fór fékk skilaboð frá öllum leikmönnum þar sem mér var þakkað fyrir tímann."

Gamaldags þjálfari sem hann mælir ekki með
Er gengi Zulte Waregem þannig að það er skiljanlegt að þjálfarinn sé ennþá í sínu starfi?

„Þetta hefur verið svolítið upp og niður, það byrjaði mjög illa, svo kom góður kafli, svo kom dýfa og núna hefur gengið ágætlega. Leikmennirnir eru ekkert alltof sáttir við hann hef ég heyrt. En eins og ég sagði við þig í viðtali í fyrra, þá er Belgía allt öðruvísi en Skandinavía sem dæmi."

Ef þú tekur í burt 'man-management' hliðina á þjálfaranum, myndir þú segja að hann væri góður þjálfari?

„Þegar kemur að taktík þá er hann mjög sterkur. Mér fannst æfingarnar ekkert alltof skemmtilegar, það voru langar æfingar, tveir og hálfur tími og rólegar - ekkert tempó. Ef þú ert ekki að spila alla leiki þá er mjög erfitt að halda sér í góðu formi með æfingunum. Þú þarft að gera mikið aukalega. En ef þú ert að spila um hverja einustu helgi þá er þetta fínt álag til að viðhalda leikformi. Ég myndi lýsa honum sem mjög gamaldags þjálfara. Það kom alveg fyrir að daginn eftir leik var 10 kílómetra hlaup úti í skógi. Það þekkist ekki lengur í fótboltanum."

„Ef ég væri spurður af leikmanni hvort hann ætti að fara til félags þar sem þessi þjálfari er að þjálfa, þá myndi ég segja honum að það væri mikil áhætta. Hann getur allt í einu ákveðið að þú sért ekki lengur hans maður, og það er ekkert sem fær því breytt. Það er sama hvernig menn æfa, það breytir ekki skoðun hans."


Hlakkar til að vera aftur hluti af liði
Hver er draumaniðurstaðan út úr tímabilinu 2026?

„Fyrir mig persónulega er það að spila alla leiki, koma mér í gang, í gott form. Það er alveg sama hversu mikið þú æfir, þú heldur þér ekkert í góðu standi nema þú spilir leiki. Vonandi verðum við í toppbaráttu. Ég vil upplifa það aftur að vera hluti af liði, hluti af hóp, vinna leiki með liðinu og með í því að berjast fyrir liðsfélagana. Mig langar það ekkert eðlilega mikið."

Hélt haus með hjálp kærustunnar
Þú spilaðir með varaliðinu, þú segir að yfirmaður fótboltamála hafi þakkað þér fyrir að hafa ekki verið með neitt vesen. Varstu aldrei nálægt því að snappa?

„Það komu alveg augnablik, sem dæmi á hefðbundinni æfingu með varaliðinu. Þar voru ungir leikmenn og gerðu hlutina ekki almennilega, ekki nægilega mikil gæði i æfingunni. Ég var stundum alveg við það að missa hausinn. En þetta var bara verkefni sem ég þurfti að klára og kærastan hjálpaði mér mjög mikið."

„Við reyndum að gera mikið úr öðrum hlutum, eins og ef það voru einhverjir viðburðir eins og landsleikir þá gerðum við mikið úr þeim. Reyna hugsa um eitthvað annað en stöðuna hjá félaginu. Ég er ekki þannig persóna að ég sé að fara missa hausinn við einhvern, en það komu alveg upp augnablik þar sem maður mætti þjálfaranum og hann horfði ekki einu sinni á mann. Ég meina hversu ómennskur er hægt að vera?"

„Það er bjartara framundan. Sogndal vildi mjög mikið fá mig og gerði mjög mikið til þess að fá mig, það var alveg erfitt fyrir þá að losa mig frá Zulte. Þjálfarinn og stjórnendurnir vildu mikið fá mig og það er mjög góð tilfinning að finna að maður sé eftirsóttur; að finna að einhvern vill hafa þig,"
segir Atli að lokum.
Athugasemdir
banner
banner