Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
   þri 10. febrúar 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Klopp opinn fyrir Real Madrid en með nokkrum skilyrðum
Mynd: EPA
Spænski miðillinn Defensa Central segir að Jürgen Klopp sé að taka við Real Madrid í sumar en að hann hafi sett ákveðin skilyrði í samninginn.

Klopp hefur ekkert verið í þjálfun síðan hann hætti með Liverpool árið 2024.

Hann náði mögnuðum árangri með Liverpool og kom liðinu aftur í fremstu röð.

Undanfarið ár hefur hann unnið sem yfirmaður fótboltamála hjá RedBull, en hann hefur stöðugt verið orðaður við þjálfarastarfið hjá Real Madrid síðan Xabi Alonso var látinn fara.

Defensa Central heldur því fram að Klopp muni taka við Real Madrid í sumar en með þeim skilyrðum að félagið fái tvo varnarmenn og tvo miðjumenn.

Einnig er hann sagður vilja nota brasilíska táninginn Endrick sem er þessa stundina á láni hjá Lyon í Frakklandi.

Klopp segist ánægður í starfi sínu hjá RedBull en ekki útilokað möguleikann á að snúa aftur í þjálfun.
Athugasemdir
banner
banner