Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
   mán 09. febrúar 2026 18:42
Brynjar Ingi Erluson
Kamada mun yfirgefa Palace eftir tímabilið
Mynd: EPA
Japanski leikmaðurinn Daichi Kamada mun yfirgefa Crystal Palace þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið en þetta fullyrðir Sky Sports í kvöld.

Kamada, sem er 29 ára gamall miðjumaður, kom til Palace á frjálsri sölu frá Lazio árið 2024.

Oliver Glasner, stjóri Palace, átti stóran þátt í að fá Kamada en þeir unnu Evrópudeildina saman með Eintracht Frankfurt árið 2022.

Hann var hægur í gang hjá Palace en spilaði mikilvæga rullu er það vann bikarmeistaratitilinn á síðasta ári.

Sky Sports segir að Kamada verði ekki áfram hjá Palace eftir þetta tímabil. Hann verður samningslaus í sumar og eru engar viðræður í gangi um framlengingu á samningnum.

Glasner hættir þá með Palace eftir tímabilið og verða því miklar breytingar hjá enska félaginu í sumar.
Athugasemdir
banner
banner