Stefán Gísli Stefánsson er í hlaðvarpsþættinum Dr. Football orðaður við Njarðvík.
Stefán er efnilegur bakvörður sem Valur keypti af Fylki fyrir síðasta tímabil og gerði fimm ára samning á Hlíðarenda.
Árbæingurinn Albert Brynjar Ingason segir í þættinum að Valur ætli sér að lána bakvörðinn og að Njarðvík sé í viðræðum um að fá hann.
Albert segir einnig að Valur ætli sér líka að lána miðvörðinn Andi Hoti (2003) sem var keyptur af Leikni síðasta vetur. Andi kom við sögu í tíu leikjum í Bestu deildinni í fyrra.

Stefán Gísli verður tvítugur í maí og á að baki 20 leiki fyrir yngri landsliðin. Hann kom við sögu í þremur leikjum með Val á síðasta tímabili og skoraði eitt mark.
Njarðvík er í leit að bakverði eftir að Alex Freyr Elísson ákvað að taka tilboði NSÍ Runavíkur í síðasta mánuði.
Alex samdi við Njarðvík fyrr í vetur en var með ákvæði um að geta farið erlendis og samdi í Færeyjum. Þar mun hann spila undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar.
Síðustu misseri hefur Valur rennt hýru auga til Freysteins Inga Guðnasonar (2007) hjá Njarðvík og er spurning hvort félögin geri einhvers konar skiptidíl sín á milli.
Njarðvíkingar eru stórhuga, hafa styrkt hópinn vel í vetur og ætla sér upp úr Lengjudeildinni í sumar.
Athugasemdir