Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   þri 10. febrúar 2026 09:40
Elvar Geir Magnússon
Ferdinand ósammála Keane varðandi Carrick
Rio Ferdinand.
Rio Ferdinand.
Mynd: EPA
Rio Ferdinand er algjörlega ósammála Roy Keane varðandi framtíð Michael Carrick. Undir stjórn Carrick hefur Manchester United unnið alla fjóra leiki sína.

Margir stuðningsmenn United vilja að Carrick verði ráðinn stjóri til frambúðar en samningur hans er aðeins út tímabilið.

Keane hefur hinsvegar talað fyrir því að ráða reyndari mann í starfið í stað þess að sýna Carrick traustið áfram. Hann hefur sagt að of mikil áhætta sé að ráða Carrick til frambúðar.

„Það er áhætta sama hver tekur við liðinu. Sama hversu Michael Carrick gengur og þó hann fái starfið áfram er alltaf einhver áhætta. Sama með hvaða nafn sem er, það er alltaf áhætta," segir Ferdinand.

„Sama hvað það er í lífinu, þegar einhver fær tækifæri til að sanna sig og stendur sig svona rosalega vel, ég skil ekki að fólk sé samt svona mótfallið því að hann fái að halda áfram. Ég skil það ekki með Roy, í hreinskilni sagt. Ég skil ekki hvernig hann getur verið svona á móti því."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner