Allir þrír markverðir í aðalliði RB Leipzig í Þýskalandi hafa framlengt samninga sína við félagið.
Leipzig vildi ganga frá markvarðarmálunum sem allra fyrst og er nú er það klárt.
Ungverjinn Peter Gulacsi, sem er 35 ára gamall, var að renna út á samningi en hann skrifaði undir samning út næsta tímabil. Hann kom til félagsins frá Salzburg árið 2015 og vann bikarmeistaratitilinn árin 2022 og 2023.
Þá var samið við manninn sem mun taka við sem aðalmarkvörður á komandi árum, Maarten Vandevoort, en hann samdi til 2023.
Vandevoort er 23 ára gamall belgískur landsliðsmaður sem kom frá Genk árið 2024. Hann hefur byrjað alla bikarleiki Leipzig á þessari leiktíð.
Þriðji markvörður liðsins, Leopold Zingerle, framlengdi samning sinn til 2028. Þessi 31 árs gamli leikmaður kom til félagsins frá Paderborn árið 2023 en ekki enn spilað leik fyrir aðalliðið.
#RBLeipzig verlängert mit Torhüter-Trio ????
— RB Leipzig (@RBLeipzig) February 9, 2026
Mit Maarten #Vandevoordt (2030), Péter #Gulácsi (2027) und Leopold #Zingerle (2028) stellen die Roten Bullen damit frühzeitig die Weichen auf der Torhüterposition. ??????????
Hier gibt’s alle Details ????https://t.co/m4F6jfLHnY pic.twitter.com/PJuQABA06r
Athugasemdir


