Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
banner
   mið 11. febrúar 2026 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Er enginn Shakespeare
Abdukodir Khusanov.
Abdukodir Khusanov.
Mynd: EPA
Það er núna liðið meira en ár frá því Manchester City festi kaup á miðverðinum Abdukodir Khusanov frá Lens í Frakklandi.

Hann talar þrátt fyrir það ekki mikla ensku eins og Pep Guardiola ljóstraði um við fréttamenn.

„Ég viðurkenni að hann talar ekki ensku eins og William Shakespeare," sagði Guardiola léttur.

„En hann er að verða betri og betri. Hann skilur það sem við viljum. Hann er svo gáfaður."

Hinn 21 árs gamli Khusanov hefur spilað 30 leiki fyrir Man City og spilað nokkuð mikið að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner