Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, hefur fulla trú á því að Stígur Diljan Þórðarson muni fara aftur út í atvinnumennsku á einhverjum tímapunkti.
Stígur Diljan er 19 ára kantmaður sem byrjaði níu leiki, skoraði eitt mark og lagði upp tvö þegar Víkingur vann Bestu deildina á síðasta tímabili. Hann kom til Víkinga frá ítalska félaginu Triestina fyrir síðustu leiktíð en hann var einnig áður hjá portúgalska félaginu Benfica.

„Hann fer aftur út, ég get sett húsið undir að Stígur fer aftur út en hann þarf að laga ýmsa hluti. Hann er búinn að bæta sig mikið. Hann meiðist og er óheppinn með það," sagði Kári í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark.
Kári hefur einnig mikla trú á Óskari Borgþórssyni sem kom til Víkinga frá norska félaginu Sogndal í fyrra.
„Það kæmi mér mjög á óvart ef hann myndi ekki fara út líka, örugglega bara eftir næsta tímabil."
Athugasemdir