Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   mán 09. febrúar 2026 16:06
Elvar Geir Magnússon
Frank: Þurfum nauðsynlega á sigrum að halda - Romero þarf að læra
Udogie frá fram í mars
Udogie er á meiðslalistanum og gæti verið frá næstu fimm vikur.
Udogie er á meiðslalistanum og gæti verið frá næstu fimm vikur.
Mynd: EPA
Romero fékk rautt gegn Man Utd.
Romero fékk rautt gegn Man Utd.
Mynd: EPA
Tottenham og Newcastle mætast í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld og stjórar liðanna mættu báðir á fréttamannafundi í dag í aðdraganda leiksins.

Thomas Frank, stjóri Tottenham, greindi frá því að vinstri bakvörðurinn Destiny Udogie væri enn og aftur lentur á meiðslalistanum og yrði frá í fjórar til fimm vikur vegna meiðsla aftan í læri.

Samkvæmt Transfermarkt eru þetta fjórðu meiðslin sem Udogie lendir í á þessu tímabili en hann hefur þegar misst af þrettán leikjum.

Hjá andstæðingunum í Newcastle eru Lewis Miley og Anthony Gordon tæpir og þá mun Joelinton ekki vera með í komandi leik.

Romero í fjögurra leikja bann
Tottenham tapaði fyrir Manchester United á laugardaginn og er nú án sigurs í síðustu sjö deildarleikjum. Liðið situr í 15. sæti deildarinnar og er sex stigum frá fallsæti.

Frank var spurður að því hvort Tottenham væri í fallbaráttu?

„Það er enginn vafi á því að við þurfum nauðsynlega að fara að vinna leiki, nauðsynlega. Ég er með einbeitinguna á þessum leik gegn Newcastle á morgun," segir Frank.

Cristian Romero, varnarmaður Tottenham, verður í banni á morgun eftir rauða spjaldið gegn Manchester United. Það var hans annað rauða spjald á tímabilunu og mun hann missa af fjórum leikjum; þar á meðal Lundúnaslagnum gegn Arsenal 22. febrúar.

„Hann er leiðtogi, hann er ungur leiðtogi. Ég man þegar ég var 30 ára og hélt að ég væri miðpunktur alheimsins. En ég var ekki nálægt mér í dag þegar kemur að skilningi og leiðtogahæfileikum. Þegar þú ert með leikmann sem spilar af svona mikilli ástríðu og ákefð geta svona hlutir gerst," segir Frank.

„Að því sögðu þá þarf hann að læra af þessu, auðvitað þarf hann að læra og halda fram veginn."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner