Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   sun 08. febrúar 2026 22:11
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Lazio kastaði frá sér tveggja marka forystu í Tórínó
Pierre Kalulu kom Juve-mönnum til bjargar
Pierre Kalulu kom Juve-mönnum til bjargar
Mynd: EPA
Juventus 2 - 2 Lazio
0-1 Pedro ('45 )
0-2 Gustav Isaksen ('47 )
1-2 Weston McKennie ('59 )
2-2 Pierre Kalulu ('90 )

Juventus og Lazio skildu jöfn, 2-2, á Allianz-leikvanginum í Tórínó í 24. umferð Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Gestirnir frá Róm komu sér í tveggja marka forystu á nokkrum mínútum sitt hvoru megin við hálfleikinn.

Spænski reynsluboltinn Pedro Rodriguez fékk boltann vinstra megin í teignum, skaut honum af varnarmanni og yfir bugaðan Michele Di Gregorio í netinu.

Strax í upphafi síðari hálfleik bætti danski framherjinn Gustav Isaksen við öðru eftir konfektsendingu frá Danilo Cataldi. Afgreiðslan var engu síðri, en Isaksen hamraði boltanum upp í þaknetið, algerlega óverjandi fyrir Di Gregorio.

Lazio komið í góða stöðu en liðinu tókst að kasta því frá sér á síðasta hálftímanum. Weston McKennie skoraði með skalla eftir fyrirgjöf Andrea Cambiaso.

Það gekk eitthvað erfiðlega hjá Lazio að verjast fyrirgjöfum Juventus frá vinstri vængnum og kom jöfnunarmark heimamanna einmitt þaðan er Jeremie Boga lyfti boltanum inn á teiginn á franska varnarmanninn Pierre Kalulu sem stangaði boltann í netið og bjargaði stigi fyrir heimamenn.

Juventus er í 4. sæti deildarinnar með 46 stig en Lazio í 8. sæti með 33 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner