Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
   þri 10. febrúar 2026 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristján fær einn besta leikmann Bestu deildarinnar
Kvenaboltinn
Katie Cousins.
Katie Cousins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katie Cousins, sem hefur verið með betri leikmönnum Bestu deildarinnar síðustu ár, er búin að skipta yfir til Damaiense í Portúgal.

Damaiense hefur verið Íslendingafélag síðustu árin en þjálfari liðsins í dag er Kristján Guðmundsson. Þorlákur Árnason stýrði liðinu þar á undan.

Katie kom fyrst hingað til lands árið 2021 og spilaði með Þrótti. Hún kom svo aftur 2023 og gekk þá aftur í raðir Þróttar, en hún lék með Val 2024. Hún fór svo aftur yfir í Laugardalinn fyrir tímabilið í fyrra.

Katie er núna mætt í portúgölsku úrvalsdeildina og er nú þegar búin að spila sinn fyrsta leik fyrir Damaiense.

Þetta er auðvitað mikið högg fyrir Þrótt sem ætlar að vera eitt af þeim liðum sem berst um Íslandsmeistaratitilinn næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner