Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   mið 11. febrúar 2026 10:11
Elvar Geir Magnússon
Stam vill sjá De Zerbi taka við Man Utd
De Zerbi er fyrrum stjóri Brighton.
De Zerbi er fyrrum stjóri Brighton.
Mynd: EPA
Jaap Stam, fyrrum varnarmaður Manchester United, telur að Roberto De Zerbi sé mjög góður kostur í stjórastól United.

De Zerbi hefur reglulega verið orðaður við stjórastarfið hjá Manchester United og sú umræða verður væntanlega enn háværari nú þegar hann er án starfs. Tilkynnt var í morgun að leiðir hans og Marseille hefðu skilið.

„Ég er mjög hrifinn af De Zerbi, því sem hann gerði hjá Brighton og svo hjá Marseille," segir Stam í nýlegu viðtali.

„Hvernig hann vill að sín lið spili, haldi vel í boltann og spili skemmtilega. Þá hefur hann sýnt klókindi sín í að loka á andstæðingana. Hann vill spila sóknarbolta og skora mörk."

„Þá tel ég líka að hann sé góður í að höndla einstaklingana, sé góður í að hlúa að þeim og gefa þeim sjálfsttaust. Þú þarft á því að halda hjá stórum félögum. Ég yrði mjög ánægður ef hann yrði ráðinn."

Sigurganga Manchester United undir stjórn bráðabirgðastjórans Michael Carrick stöðvaðist í gær, með 1-1 jafntefli gegn West Ham.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner