Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
   þri 10. febrúar 2026 21:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Ótrúlegur leikur hjá Leicester og Southampton
Jack Stephens var á meðal markaskorara hjá Southampton.
Jack Stephens var á meðal markaskorara hjá Southampton.
Mynd: EPA
Það var mögnuð dramatík í leik Leicester og Southampton í ensku Championship-deildinni í kvöld.

Leicester komst í 3-0 í fyrri hálfleik með mörkum frá Divine Mukasa, Patson Daka og Issahaku Fatawu en í seinni hálfleiknum snerist leikurinn gjörsamlega við.

Southampton minnkaði muninn eftir rúmlega klukkutíma en í kjölfarið fylgdu þrjú mörk í viðbót - það síðasta í uppbótartímanum og ótrúlegur sigur Southampton staðreynd. Skelfilegt tímabil Leicester heldur áfram en liðið er með jafnmörg stig og Blackburn, sem er í fallsæti.

Birmingham og West Brom gerðu þá markalaust jafntefli og Norwich vann 0-3 útisigur á Oxford þar sem Mohamed Toure gerði þrennu.

Birmingham 0 - 0 West Brom

Oxford United 0 - 3 Norwich
0-1 Mohamed Toure ('1 )
0-2 Mohamed Toure ('19 )
0-3 Mohamed Toure ('47 )

Leicester City 3 - 4 Southampton
1-0 Divine Mukasa ('10 )
2-0 Patson Daka ('13 )
3-0 Issahaku Fatawu ('29 )
3-1 Ross Stewart ('62 )
3-2 Jack Stephens ('83 )
3-3 Ryan Manning ('87 )
3-4 Shea Charles ('90 )
Athugasemdir
banner
banner