Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   mán 09. febrúar 2026 22:09
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Villarreal gekk frá Espanyol á rúmum tuttugu mínútum
Nicolas Pepe skoraði eitt af mörkum Villarreal
Nicolas Pepe skoraði eitt af mörkum Villarreal
Mynd: EPA
Villarreal 4 - 1 Espanyol
1-0 Georges Mikautadze ('35 )
2-0 Jose Salinas ('41 , sjálfsmark)
3-0 Nicolas Pepe ('50 )
4-0 Alberto Moleiro ('55 )
4-1 Leandro Cabrera ('88 )

Spænska liðið Villarreal kom sér aftur á sigurbraut með trompi er liðið hafði 4-1 sigur gegn Espanyol í La Liga í kvöld.

Villarreal, sem er í baráttu um Meistaradeildarsæti, hafði ekki unnið í síðustu þremur leikjum, en þeir fundu sitt gamla form með því að skora fjögur mörk á rúmum tuttugu mínútum.

Georgíumaðurinn Georges Mikautadze skoraði á 35. mínútu með hálfgerðri bakfallsspyrnu af stuttu færi og þá setti Jose Salinas boltann í eigið net aðeins sex mínútum síðar.

Staðan í hálfleik 2-0 fyrir heimamönnum sem skoruðu síðan tvö mörk á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleiks. Fílabeinsstrendingurinn Nicolas Pepe skoraði á 50. mínútu og þá gerði Alberto Moleiro fjórða markið fimm mínútum síðar.

Á lokamínútunum skoruðu gestirnir sárabótarmark er Leandro Cabrera stangaði hornspyrnu Cyril Ngonge í netið. Heldur seint hjá Espanyol sem hefur tapað fimm af síðustu sex deildarleikjum sínum.

Villarreal er í 4. sæti deildarinnar með 45 stig, eins og Atlético Madríd sem er í 3. sætinu, en Madrídingar með betri markatölu. Espanyol er í 6. sæti með 34 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 27 16 6 5 46 25 +21 54
4 Villarreal 27 17 3 7 50 32 +18 54
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 27 10 5 12 23 29 -6 35
10 Athletic 27 10 5 12 30 37 -7 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Valencia 27 8 8 11 30 41 -11 32
13 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
14 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
15 Girona 27 7 10 10 28 43 -15 31
16 Alaves 27 7 6 14 25 37 -12 27
17 Elche 27 5 11 11 35 41 -6 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 26 3 8 15 16 43 -27 17
Athugasemdir
banner