Hansi Flick, þjálfari Barcelona á Spáni, er sagður íhuga að hætta þjálfun liðsins ef Victor Font verður kjörinn forseti í kosningunum sem fara fram í næsta mánuði. MARCA greinir frá.
Joan Laporta hætti sem forseti Barcelona í dag til þess að skrá sig í kosningabaráttuna en Rafa Yuste, varaforseti félagsins, mun sinna embættinu þar til nýr forseti verður kjörinn.
Laporta er talinn líklegastur til að ná endurkjöri en hann mun þá taka aftur við störfum 1. júlí.
MARCA segir að ef Laporta verði ekki endurkjörinn og Victor Font muni vinna kosningarnar þá íhugi hann að segja starfi sínu lausu.
Samkvæmt spænsku miðlunum vill Font halda Flick áfram en reka Deco, sem sinnir stöðu yfirmanns íþróttamála. Font mun kynna verkefnið fyrir Flick á næstu dögum.
„Við munum útskýra verkefnið á næstu dögum. Flick er að biðja um stöðugleika og ef hann er ánægður með það sem er í gangi núna þá verður hann alveg agndofa yfir því sem við munum kynna fyrir honum.“
„Það að gera bara eitthvað er ekki stöðugleiki. Það að leyfa Inigo Martinez að fara til þess að lækka launakostnað og fá síðan Joao Cancelo nokkrum mánuðum síðar er ekki stöðugleiki,“ sagði Font sem hefur eldað grátt silfur með Laporta enda alls ekki í fyrsta sinn sem þeir mætast í forsetakosningum félagsins.
Athugasemdir



