Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   mán 09. febrúar 2026 11:00
Elvar Geir Magnússon
Fyrirliði Real Madrid pirraður
Mynd: EPA
Dani Carvajal, fyrirliði Real Madrid, fær ekki margar mínútur um þessar mundir og spænskir fjölmiðlar segja að hann sé orðinn mjög pirraður yfir stöðunni.

Carvajal fór í aðgerð á hné í október og var frá í tvo mánuði en í tíu leikjum síðan hann kom til baka hefur hann bara spilað tvo, báða sem varamaður.

Hann hefur átta sinnum verið ónotaður varamaður, þar á meðal í 2-0 sigri Real Madrid gegn Valencia í gær. Eftir leikinn sást að hann var mjög ósáttur þegar hann spjallaði við einn úr þjálfarateymi liðsins.

Alvaro Arbeloa ákvað að láta David Jimenez byrja og kom svo Trent Alexander-Arnold inn sem varamaður en ekki Carvajal.

„Það er vandamál með Carvajal. Samningur fyrirliðans rennur út í sumar, hann er mikilvægur hlekkur í spænska landsliðinu en er ekki að spila. Hann hitaði ekki einu sinni upp," segir íþróttafréttamaðurinn Antonio Romero.

Ef Carvajal heldur áfram að vera þetta aftarlega í goggunarröðinni hjá Arbeloa verður að teljast mjög líklegt að hann yfirgefi spænska stórliðið í sumar.


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 27 16 6 5 46 25 +21 54
4 Villarreal 27 17 3 7 50 32 +18 54
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 27 10 5 12 23 29 -6 35
10 Athletic 27 10 5 12 30 37 -7 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Valencia 27 8 8 11 30 41 -11 32
13 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
14 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
15 Girona 27 7 10 10 28 43 -15 31
16 Alaves 27 7 6 14 25 37 -12 27
17 Elche 27 5 11 11 35 41 -6 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 26 3 8 15 16 43 -27 17
Athugasemdir
banner