Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
   sun 11. júní 2017 22:02
Arnar Helgi Magnússon
Alfreð Finnboga eftir erfitt tímabil: Fer með bros á vör í sumarfrí
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alfreð Finnbogason framherji Íslands var að vonum kampakátur eftir gríðarlega sterkan sigur á Króötum í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Króatía

„Frábær tilfinning. Það stemmdi allt í 0-0, mjög lokaður leikur og það sást að þeir voru nokkuð sáttir með 0-0, þannig bara geggjað að klára þetta í lokin og halda þessu geggjaða recordi á heimavelli."

Alfreð var "eini" eiginlegi framherjinn í liðinu í dag en hann hafði Gylfa Þór sér til halds og traust uppá toppi í kvöld.

„Ég vissi alveg að það yrði erfitt, ég hef spilað á móti þeim tvisvar áður og þetta var svona leikur sem maður þarf að halda varnarlínunni og vera að berjast, vinna og reyna að skrapa upp þessi móment sem við fáum. Maður var að vonast eftir 1-2 mómentum sem maður var að vonast eftir stungum eða reboundi."

Sigurmarkið kom seint í leiknum og segir Alfreð að liðið hafi ekki verið búið að sætta sig við jafntefli í leiknum.

„Nei, ef það er eitthvað lið sem átti skilið að vinna þá vorum það við. Við vorum að halda áfram að halda áfram að berjast. Við sóttum okkar lukku í þessum leik."

Alfreð hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu sem var að ljúka en hann hefur verið að kljást við erfið meiðsli. Hann metur það mikils að hafa lokað tímabilinu með stæl í kvöld.

„Já það er geggjað. Þetta var langt og á tímabili leiðinlegt tímabil en að enda það svoleiðis að halda okkur uppi með félagsliðinu og maður er búin að vera með þennan leik í hausnum lengi og hversu frábært það yrði að klára tímabilið með sigri á Króötum."
Slapp
banner