„Maður finnur fyrir meiri áhuga hjá fjölmiðlum og almenningi. UEFA er að gera þetta að miklu stærra móti en fyrir fjórum árum og þetta er ótrúlega spennandi," sagði Glódís Perla Viggósdóttir við Fótbolta.net í dag en nú er vika í að Ísland hefji leik á EM í Hollandi.
Um helgina var íslenska liðið í æfingabúðum á Selfossi og sú ferð heppnaðist mjög vel.
„Við fórum í hellaskoðun. Slökuðum á í Fontana spa á Laugarvatni og síðan grilluðum við í bústað, sungum og höfðu gaman. Elín Metta kom mest á óvart í söngnum. Hún tók eitt solo og kom okkur öllum á óvart."
„Við gistum fimm saman í íbúðum en ekki í herbergjum. Við gistum fimm saman og skiptumst á að gera morgunmat."
„Ég bauð upp á bananapönnukökur. Þetta var keppni, eldri á móti yngri og eldri toppuðu okkur daginn eftir. Það var svolítið svekkjandi. Þær voru með skreytingar, vöfflur, boost og allan pakkann."
Íslenska liðið spilar ekki æfingaleik í aðdraganda mótsins og Glódís getur ekki beðið eftir að fara inn á völlinn gegn Frökkum eftir viku.
„Þetta myndar ákveðna spennu. Það er langt síðan að við spiluðum leik og ég held að það muni bara hjálpa okkur," sagði Glódís.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















