Guðjón Baldvinsson skoraði eftir nokkrar sekúndur þegar Stjarnan slátraði Þrótti 6-0 í Pepsi-deildinni í kvöld. Guðjón átti góðan leik, skoraði tvö og var nálægt þrennunni.
Lestu um leikinn: Stjarnan 6 - 0 Þróttur R.
„Við vorum ákveðnir í að byrja leikinn vel og gerðum það heldur betur." sagði Guðjón eftir leik.
Fyrstu tölur segja að markið hafi komið eftir níu sekúndur en aðrir segja að það hafi komið eftir fjórar. Ef það kom eftir fjórar sekúndur er um met að ræða..
„Þú verður að fara aftur yfir tímann!... Nei nei mér er alveg sama um eitthvað met."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.























