Nú eru aðeins fimm dagar í að íslenska liðið hefji leik á Evrópumótinu í Hollandi.
Hallbera Guðný Gísladóttir, bakvörður íslenska liðsins, hefur verið að telja niður síðan liðið tryggði sér inn á mótið.
„Ég hef þannig séð búin að telja niður síðan við tryggðum okkur inn á mótið. Maður er búinn að bíða ansi lengi," sagði Hallbera í viðtali við Fótbolta.net. í dag.

Hallbera ákvað að fara frá Breiðabliki og fara til Djurgården í Svíþjóð. Hún kveðst ánægð með þá ákvörðun.
„Ég var orðin mjög þreytt hérna heima, það var mikið að gera hjá mér, og að fara út og kúpla sig frá auka stressi það hjálpaði mjög mikið. Ég er búin að æfa betur en ég átti kost á hér heima og auðvitað er ég að spila í mjög góðri deild."
Mótið í Hollandi er mjög stórt miðað við síðustu mót. Umfjöllun um mótið hefur verið betri og stelpurnar finna fyrir því.
„Þetta er á öðru "level-i". Það er ótrúlega gaman að taka þátt í þessu og upplifa breytinguna í gegnum árin."
Undirbúningurinn hefur gengið gríðarlega vel hjá stelpunum, þær fóru m.a. í bardagaíþróttir og í skemmtiferð á Selfoss.
„Við byrjuðum á að fara í MMA, það var ótrúlega gaman, ég fékk að berja aðeins í Fanndísi og gefa henni olnbogaskot, mig hefur lengi dreymt um það. Síðan áttum við ótrúlega fína ferð á Selfoss."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.