„Nei, sigurmarkið í bikarúrslitun á móti KR var nú sætara en þetta var mjög sætt,“ svaraði Bjarni Ólafur Eiríksson um sigurmark sitt gegn Breiðablik í kvöld.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 2 Valur
Valur fékk á sig mark snemma leiks og virtust ekki rétt stilltir í upphafi. „Breiðablik hefur náttúrulega byrjað síðustu tvo leiki frábærlega þannig að við ætluðum heldur betur að koma í veg fyrir eitthvað svona slys en það gekk ekki en þetta var kannski ágætis vakning.“
Bjarni gaf sig allan í leikinn en hafði ekki alltaf erindi sem erfiði í sprettum sínum til baka gegn geysilega fljótu liði Blika. „Það er nú farið að hægjast aðeins á mér og síðustu mínúturnar voru ansi erfiðar. En það er alltaf jafn fyndið hvað svoleiðis gleymist í einhverjum fagnaðarlátum,“ sagði Bjarni glaður eftir sterkan sigur í kvöld.
























