Hjörvar Hafliðason, sparspekingur og fyrrum markvörður Breiðabliks, reif fram hanskana í kvöld og varði mark Augnabliks þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitakeppni 3. deild karla með 6-0 sigri á Stál-Úlfi.
Hjörvar skoraði sjötta mark Augnabliks í leiknum úr vítaspyrnu eins og sjá má hér að ofan.
Hjörvar skoraði sjötta mark Augnabliks í leiknum úr vítaspyrnu eins og sjá má hér að ofan.
„Við höfðum klúðrað fyrr í leiknum og það var rætt í hálfleik að ég myndi taka það ef við myndum fá víti. Ég hef stúderað vítaspyrnur í mörg ár þannig að þa var kannski við hæfi að ég skyldi taka þetta," sagði Hjörvar sem fékk gula spjaldið fyrir fagnaðarlæti sín. „Ég hef aldrei áður skorað mark þannig að þetta var þess virði."
Hjörvar lék allan leikinn í kvöld en hann stóð í rammanum í fjarveru Gísla Einarssonar sem er meiddur á baki.
„Það var fínt að taka þátt í þessu hjá Augnablik, þetta er nefnilega miklu sterkara lið en flestir. Það er ágætlega staðið að þessu þó að það sé ekki borgað á réttum tíma"
„Ég var með einhverjar kröfur og það var talað um að borga tíunda, svo þegar var kominn ellefti og maður var farinn að rukka var talað um að borga fimmtánda og nú á að borga tuttugasta. Ég er með tíu þúsund kall á stigið þannig að ég er að fá 30 þúsund kall á sigurleikinn sem er svona 7-8 ára gamall taxti."
Hjörvar býst ekki við að spila með Augnablik í úrslitakeppninni sem hefst um aðra helgi.
„Ég held að ég spili ekki mínútu, við erum með miklu betri markmann og hann kemur inn í þetta í úrslitakeppninni. Þetta verður gert af fullri alvöru og það væri hrikalega gaman ef Augnablik færi upp í 2. deild því að það er annað Kópavogslið, HK, þar á næsta ári," sagði Hjörvar meðal annars.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























