Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 15:18
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Stjarnan skoraði tólf - Úlfa Dís með þrennu
Kvenaboltinn
Úlfa Dís átti stórleik í Fjarðabyggðarhöllinni
Úlfa Dís átti stórleik í Fjarðabyggðarhöllinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FHL 0 - 12 Stjarnan
0-1 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('2 )
0-2 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('18 )
0-3 Jana Sól Valdimarsdóttir ('24 )
0-4 Snædís María Jörundsdóttir ('39 )
0-5 Ásthildur Lilja Atladóttir ('42 )
0-6 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('45 )
0-7 Birna Jóhannsdóttir ('62 )
0-8 Snædís María Jörundsdóttir ('67 )
0-9 Anna Katrín Ólafsdóttir ('72 )
0-10 Birna Jóhannsdóttir ('76 )
0-11 Hrefna Jónsdóttir ('78 )
0-12 Hrefna Jónsdóttir ('84 )

Stjörnukonur slátruðu FHL, 12-0, í A-deild Lengjubikarsins í Fjarðabyggðarhöllinni í dag.

Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í fyrri hálfleiknum. Hún er því komin með fimm mörk í Lengjubikarnum á þessu tímabili.

Stjarnan leiddi með sex mörkum gegn engu þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks en í þeim síðari skoruðu þær Birna Jóhannsdóttir og Hrefna Jónsdóttir tvö mörk á haus og Anna Katrín Ólafsdóttir eitt mark.

Niðurstaðan tólf marka sigur Stjörnunnar sem er á toppi A-riðils með sex stig en FHL án stiga á botninum.
Stöðutaflan Ísland Lengjubikar kvenna
  L U J T ms: mf: mun Stig
Athugasemdir
banner
banner