Spánarmeistarar Barcelona eru að styrkja unglingaliðin sín þessa dagana og er Ajay Tavares, fæddur 2009, næstur inn.
Tavares er aðeins 16 ára gamall og gaf munnlegt samþykki fyrir samningi hjá Barcelona í janúar.
Hann mun því flytja til Spánar eftir tímabilið en Tavares var eftirsóttur af ýmsum félagsliðum utan Englands. Hann hafnaði tilboðum úr þýsku deildinni til að fara til Barcelona, þar sem RB Leipzig er nefnt til sögunnar.
Tavares flýgur til Spánar á sunnudag og fer í læknisskoðun á mánudaginn.
Tavares leikur sem kantmaður og er með 3 mörk í 15 leikjum fyrir unglingalandslið Englands þrátt fyrir ungan aldur.
Börsungar hafa fylgst náið með Tavares eftir að hann skoraði þrennu á 16 mínútna kafla fyrir Norwich gegn Málaga í unglingaleik fyrra.
Athugasemdir



