Leikjamet ensku úrvalsdeildarinnar er fallið en það er nú formlega í eigu enska miðjumannsins James Milner. Hann bætti met Gareth Barry frá 2018.
Milner, sem er fertugur, og að spila sitt 23. tímabil í ensku úrvalsdeildinni er í byrjunarliðinu hjá Brighton gegn Brentford en leikurinn hófst fyrir fáeinum mínútum síðan og þar með féll metið.
Á dögunum jafnaði hann leikjamet Barry í úrvalsdeildinni en nú er það alfarið í eigu Milner.
Milner þreytti frumraun sína með Leeds árið 2002 en síðan þá hefur hann spilað með liðum á borð við Aston Villa, Newcastle og Manchester City og Liverpool. Þar vann hann fjölmarga titla, en árið 2023 gekk hann í raðir Brighton.
Stórkostlegt afrek hjá Milner sem hefur nú spilað 654 úrvalsdeildarleiki á ferlinum.
Barry þarf að sætta sig við annað sætið með 653 leiki og síðan kemur Ryan Giggs, fyrrum leikmaður Manchester United, í þriðja með 632 leiki.
23 top-flight seasons, six clubs and 654 appearances ????
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) February 21, 2026
James Milner, Premier League legend ???? pic.twitter.com/h50JbUY7OS
Athugasemdir



