PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   lau 21. febrúar 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bráðefnilegur skrifar undir hjá Aftureldingu
Lengjudeildin
Mynd: Afturelding
Afturelding er búið að gera samning við ungan og efnilegan leikmann sem er fæddur 2011 og hefur verið að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur.

Sá heitir Ari Hrafn Haraldsson og hefur verið valinn í úrtakshópa unglingalandsliða Íslands að undanförnu.

„Ari Hrafn hefur sýnt gríðarlegan þroska í sínum leik og hugarfari gagnvart fótboltanum og er ljóst að þar fer metnaðarfullur og vinnusamur leikmaður. Það er afar ánægjulegt að sjá unga iðkendur úr okkar starfi taka þetta skref og festa sig í sessi hjá félaginu,"

Talað er um að Ari sé með efnilegustu leikmönnum sem komið hafa frá Aftureldingu síðustu ár og skoraði í æfingaleik gegn Haukum í vetur, aðeins fjórtán ára gamall.

Afturelding féll úr efstu deild í fyrra og verður áhugavert að sjá hvort Ari Hrafn fái mínútur í Lengjudeildinni í ár.


Athugasemdir
banner
banner