Raith Rovers tók á móti toppliði St. Johnstone í næstefstu deild skoska boltans í gær og lauk leiknum með markalausu jafntefli.
Gestirnir voru talsvert sterkari aðilinn í leiknum og ótrúlega óheppnir að fara ekki með sigur af hólmi, en þeir geta kennt sóknartengiliðnum Sam Stanton um það eftir ótrúlegt atvik snemma leiks.
Stanton var í algjöru dauðafæri, aðeins tvo metra frá hálfopnu marki, þegar hann fékk boltann til sín á lofti eftir að skot samherja hans breytti um stefnu af varnarmanni. Markvörður Raith hefur mögulega truflað Stanton eitthvað sem varð til þess að hann hitti boltann ekki nægilega vel og skaut honum í slána.
Boltinn datt þá niður til liðsfélaga hans sem reyndi að koma boltanum í netið af öðru álíka stuttu og galopnu færi, en marktilraunin endaði í hausnum á Stanton sem náði ekki að forða sér af marklínunni eftir að hafa klúðrað dauðafærinu sekúndu fyrr. Því var rangstaða dæmd.
Sjón er sögu ríkari og er hægt að sjá myndbandið hér fyrir neðan, þar sem Stanton bjargar andstæðingum sínum í tvígang.
Sam Stanton comical miss - Raith Rovers vs St, Johnstone
by
u/imtherealdazza in
soccer
Athugasemdir


