Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
banner
   fim 19. febrúar 2026 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mun aldrei gleyma þegar hann horfði á JJ Gabriel í fyrsta sinn
JJ Gabriel.
JJ Gabriel.
Mynd: Instagram/jjnr10
Michael Carrick var viðstaddur þegar hinn 15 ára gamli JJ Gabriel átti stórleik fyrir U18 lið Manchester United gegn Oxford í gær.

Gabriel, sem hefur vakið mikla athygli með unglingaliðum United, skoraði glæsilegt mark og sýndi mjög flotta takta.

Oliver Holt, blaðamaður Daily Mail, var á leiknum og hann sparaði ekki stóru orðin um þennan efnilega leikmann.

„Ég hef horft á alla efnilegustu leikmenn Englands síðustu 30 árin en ég mun aldrei gleyma því þegar ég horfði á JJ Gabriel í fyrsta sinn. Þessi sérstaki 15 ára leikmaður er framtíðarstjarna," skrifar Holt í grein sinni.

„Þessi strákur á skilið að hafa áhorfendur fyrir allt það sem hann gerir í leiknum."

Gabriel byrjaði að æfa með aðalliði Man Utd þegar hann var aðeins 14 ára gamall. Barcelona hefur sýnt honum mikinn áhuga en United vonast til þess að halda þessari vonarstjörnu í sinni röðum.

Hér fyrir neðan má sjá mark hans gegn Oxford í gær.


Athugasemdir
banner
banner
banner