Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   mið 18. febrúar 2026 22:56
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeild kvenna: Arsenal og Real Madrid áfram
Kvenaboltinn
Ríkjandi Evrópumeistarar Arsenal mæta Englandsmeisturum Chelsea í 8-liða úrslitum.
Ríkjandi Evrópumeistarar Arsenal mæta Englandsmeisturum Chelsea í 8-liða úrslitum.
Mynd: EPA
Það fóru tveir leikir fram í útsláttarkeppni Meistaradeildar kvenna í kvöld.

Þar höfðu Arsenal og Real Madrid betur í heimaleikjum sínum gegn OH Leuven og Paris FC.

Staðan var jöfn í hálfleik í viðureign Arsenal gegn Leuven þar sem gestirnir frá Belgíu voru óvænt sterkari aðilinn.

Í síðari hálfleik snerist dæmið við og stjórnaði Arsenal ferðinni. Alessia Russo og Mariona Caldentey nýttu færin sín til að tryggja 3-1 sigur. Arsenal fer því áfram í næstu umferð eftir 4-0 sigur í fyrri leiknum og mætir Chelsea í afar spennandi stórleik í 8-liða úrslitum.

Real Madrid sigraði Paris og spilar við stórveldi Barcelona í næstu umferð.

Real Madrid vann fyrri leikinn naumlega í París og byrjuðu frönsku gestirnir á því að missa leikmann af velli í kvöld. Thea Greboval fékk að líta beint rautt spjald og réðu tíu leikmenn Paris ekki við Madrídinga, svo lokatölur urðu 2-0.

Arsenal 3 - 1 OH Leuven (7-1 samanlagt)
1-0 Alessia Russo ('23)
1-1 Sara Pusztai ('29)
2-1 Mariona Caldentey ('65, víti)
3-1 Alessia Russo ('91)

Real Madrid 2 - 0 Paris FC (5-2 samanlagt)
0-0 Caroline Weir, misnotað víti ('36)
1-0 Naomie Feller ('54)
2-0 Melween N'Dongala ('67)
Rautt spjald: Thea Greboval, Paris ('4)
Athugasemdir
banner
banner
banner