PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   lau 21. febrúar 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Tudor 100% viss um að forðast fall
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Igor Tudor nýr þjálfari Tottenham svaraði spurningum á fréttamannafundi í gær, fyrir stórleik og hatramann nágrannaslag gegn Arsenal sem verður leikinn á morgun.

Tudor er nýtekinn við þjálfarastarfinu hjá Spurs eftir slakt gengi í ensku úrvalsdeildinni á sex mánuðum undir stjórn Thomas Frank og er spenntur fyrir áskoruninni.

Hann verður án ellefu leikmanna gegn Arsenal vegna ótrúlegra meiðslavandræða, auk Cristian Romero sem er í leikbanni. Tottenham er 16. sæti deildarinnar sem stendur, fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar tólf umferðir eru eftir.

„Það hjálpar okkur ekki að hugsa um fallbaráttuna, eina í stöðunni er að hugsa um vinnuna sem er framundan. Strákarnir þurfa að einbeita sér að því að leggja sig fram á hverjum einasta degi á æfingum og taka það svo með sér inn í leikina," sagði Tudor.

„Það er mikið eftir af tímabilinu og ég gef svona hlutum ekki gaum. Ég tala aldrei um úrslit leikja eða hvað við viljum afreka eftir tímabilið. Ég trúi ekki á það. Það sem ég trúi á er frammistaðan á æfingunni í dag. Þetta er það eina sem ég vil að leikmennirnir séu að hugsa um. Allur árangur veltur á því hvað við gerum á æfingasvæðinu.

„Fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið, tíu stigum eða tveimur stigum, þetta er allt það sama. Þetta skiptir engu máli. Við þurfum að einbeita okkur að því að æfa vel og spila vel. Það hjálpar okkur ekki að horfa upp eða niður stöðutöfluna.

„Strákarnir vildu vita hver markmiðin væru og það er einfalt. Við munum vinna í gildum okkar sem liðsheild og í leikstílnum. Þetta er það sem skiptir máli, að æfa vel."


Tudor er gríðarlega spenntur fyrir að mæta Arsenal sem vermir toppsæti deildarinnar.

„Þetta er stórkostlegur leikur til að hefja dvölina á, ég hef heyrt margt gott um Arsenal og við þurfum að sýna þeim að okkur stendur ekki á sama. Við verðum að sýna þeim að við erum strax byrjaðir að breyta okkar leikstíl og styrkja gildin.

„Við erum með góða leikmenn, þeir eru með góða leikmenn. Við erum að spila á heimavelli. Við sjáum til hvernig þetta endar.

„Það er erfitt að ætla að breyta miklu á miðju tímabili, vanalega notar maður undirbúningstímabilið fyrir það, en þetta er neyðarástand og við þurfum að finna lausnir strax. Við erum að glíma við rosaleg meiðslavandræði svo við verðum bara að taka einn dag í einu."


Tudor var að lokum spurður hversu mikla trú hann hefði á því að Tottenham myndi forðast fall í vor. Þjálfarinn var fljótur að svara: „Hundrað prósent."

   20.02.2026 15:25
Kom ekki til Tottenham til að njóta - „Mjög sjaldgæf staða“

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 27 17 7 3 52 20 +32 58
2 Man City 26 16 5 5 54 24 +30 53
3 Aston Villa 26 15 5 6 37 27 +10 50
4 Man Utd 26 12 9 5 47 37 +10 45
5 Chelsea 26 12 8 6 47 30 +17 44
6 Liverpool 26 12 6 8 41 35 +6 42
7 Brentford 26 12 4 10 40 35 +5 40
8 Everton 26 10 7 9 29 30 -1 37
9 Bournemouth 26 9 10 7 43 45 -2 37
10 Newcastle 26 10 6 10 37 37 0 36
11 Sunderland 26 9 9 8 27 30 -3 36
12 Fulham 26 10 4 12 35 40 -5 34
13 Crystal Palace 26 8 8 10 28 32 -4 32
14 Brighton 26 7 10 9 34 34 0 31
15 Leeds 26 7 9 10 36 45 -9 30
16 Tottenham 26 7 8 11 36 37 -1 29
17 Nott. Forest 26 7 6 13 25 38 -13 27
18 West Ham 26 6 6 14 32 49 -17 24
19 Burnley 26 4 6 16 28 51 -23 18
20 Wolves 27 1 7 19 18 50 -32 10
Athugasemdir
banner