PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   lau 21. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Átta leikir í efstu deild
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það fara sextán leikir fram í Lengjubikarnum í dag og eru afar áhugaverðir slagir á dagskrá bæði í karla- og kvennaflokki.

Í efstu deild karla tekur Fram á móti Stjörnunni fyrir hádegi áður en Njarðvík fær KA í heimsókn í Nettóhöllina.

Stjarnan getur komist á topp riðils 1 með sigri á Lambhagavellinum, Garðbæingar eru þremur stigum fyrir ofan Fram eftir tvær umferðir.

Njarðvík getur að sama skapi komist á topp riðils 3 með sigri gegn KA. Njarðvíkingar myndu klifra yfir KR og Víking R. til að hirða toppsætið.

Valur og Afturelding eigast svo við í Egilshöll og eru bæði lið með fullt hús stiga. Valur hefur að vísu aðeins spilað einn leik og Afturelding tvo.

Í efstu deild kvenna eru fimm leikir á dagskrá í tveimur riðlum. Liðin eigast við í 2. umferð og má finna spennandi slagi þar sem FH spilar við Þrótt á meðan Víkingur og Valur eigast við.

Stjarnan heimsækir Fjarðabyggðarhöllina og svo mætast sameinuð lið á Akureyri, þegar Þór/KA tekur á móti Grindavík/Njarðvík. Fram og ÍBV eigast einnig við.

Að lokum eru leikir á dagskrá í B-deildum hjá báðum kynjum og í C-deild karla.

Lengjubikar karla - A deild, riðill 1
11:00 Fram - Stjarnan (Lambhagavöllurinn)

Lengjubikar karla - A deild, riðill 2
16:00 Valur - Afturelding (Egilshöll)

Lengjubikar karla - A deild, riðill 3
14:00 Njarðvík - KA (Nettóhöllin - gervigras)

Lengjubikar kvenna - A deild, riðill 1
13:00 FHL - Stjarnan (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 FH - Þróttur R. (Skessan)
17:00 Þór/KA - Grindavík/Njarðvík (Boginn)

Lengjubikar kvenna - A deild, riðill 2
14:00 Víkingur R. - Valur (Víkin)
14:00 Fram - ÍBV (Lambhagavöllurinn)

Lengjubikar kvenna - B deild
12:00 Haukar - KR (Knatthús Hauka)

Lengjubikar karla - B deild, riðill 1
16:00 KÁ - Kormákur/Hvöt (Knatthús Hauka)

Lengjubikar karla - B deild, riðill 2
14:00 Reynir S. - Sindri (Domusnovavöllurinn)
14:00 Víkingur Ó. - KFG (Akraneshöllin)

Lengjubikar karla - B deild, riðill 4
14:00 Tindastóll - Dalvík/Reynir (Sauðárkróksvöllur)
15:30 KFA - Magni (Fjarðabyggðarhöllin)

Lengjubikar karla - C deild, riðill 1
16:00 Hafnir - Afríka (Nettóhöllin)
16:00 Árborg - Álafoss (JÁVERK-völlurinn)
Athugasemdir
banner
banner